Að minnsta kosti tíu starfsmenn bráðamóttöku Landspítala hafa verið útsettir fyrir berklasmiti undanfarnar vikur.
Starfsfólk hefur gagnrýnt sýkingavarnir á bráðamóttökunni og segir skort á þeim endurspegla plássleysi á deildinni.
Yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítala segir aukinn fjölda berklasmita mega rekja til næmara prófs og breytts samfélags.
Á hitafundi félaga í fimm stéttarfélögum sem starfa á bráðamóttöku Landspítalans, sem haldinn var í febrúar, kom fram að starfsfólki þættu vinnuaðstæður og sýkingavarnir á deildinni vera óviðunandi.
Aukin hætta á berklasmiti í breyttu samfélagi
Með auknum fjölbreytileika samfélagsins og tíðari ferðalögum milli landa eykst hættan á að vera útsettur fyrir berklasmiti, að mati yfirlæknis smitsjúkdómadeildar.
Fjöldi berklasmita hér á landi hefur haldist óbreyttur undanfarin tíu til tuttugu ár.
Tíðni virkra smita hefur þó dregist saman þar sem íbúafjöldi hefur aukist.
Erna Milunka Kojic, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítala, segir sífellt unnið að því að bæta verklag við smitvarnir á deildum spítalans.
„Við höfum brugðist við því og erum alltaf að bæta okkar verklag. Það sem við höfum gert er að við erum með miklu betra próf til að meta hvort að viðkomandi hafi verið útsettur.“
Nýtt og næmara próf var tekið í notkun fyrir tveimur árum.
Erna segir að með nýja prófinu séu fleiri að greinast útsettir fyrir berklum, enda prófið mun næmara en það sem áður var notað.
„Þar sem við höfum gert skimanir þar höfum við fundið útsetningar. Útsetningar sem við annars hefðum ekki fundið ef við hefðum ekki verið með þessar virku skimanir í gangi. Og það má vera á ýmsum stöðum í bænum.“
Mikilvægt að starfsfólk noti hlífðarbúnað
Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttökunni segir mikilvægt að að ráðamenn hlusti á starfsfólk.
Læknir á deildinni segir það ekki geta verið tilviljun að hópur starfsfólks sé að greinast útsett fyrir berklum, hann telur að sýkingavörnum sé ábótavant á deildinni.
Starfsfólk hefur sagt að smitin séu ein birtingarmynd aðstæðna sem sköpuðust á deildinni í febrúar, þegar ekki var hægt að leggja sjúklinga þaðan inn á aðrar deildir Landspítala vegna plássleysis.
Erna tekur undir að aðstæður á bráðamóttökunni séu krefjandi en segir að unnið sé að forvörnum og samkvæmt skýru verklagi gegn smitum.
„Við erum endalaust að leggja áherslu á að með núverandi aðstæður, sem við höfum til að vinna með á bráðamótttökunni, viljum við leggja áherslu á skýrari og betri notkun á hlífðarbúnaði. Því það er það sem við getum gert. Og ef einhver greinist með eða er útsettur fyrir berklum þá höfum við skýr vinnubrögð með því að bjóða upp á meðferð, til þess einmitt að hindra að fólk veikist síðar meir og fái smitandi berkla.“
Erna segir að íslenskt heilbrigðiskerfi standi framar öðrum löndum þegar kemur að viðbrögðum þegar starfsfólk greinist útsett fyrir smiti.