Hollendingar geta keypt íslenskt skyr, sem er framleitt á Íslandi, á lægra verði en okkur Íslendingum stendur til boða hér heima. Frá þessu greinir Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor í stjórnmálafræði og formaður Evrópuhreyfingarinnar, en hann er einmitt staddur í Hollandi.
Hann deilir í myndbandi á Facebook að hann hafi nýlega bent á að matvælaverð í Hollandi sé töluvert lægra en á Íslandi, eða um 37 prósentum. Hann hafi fengið athugasemd við þá fullyrðingu þar sem bent var á að líklega spilaði flutningskostnaður þar lykilhlutverk, enda sé Holland á meginlandi Evrópu sem auðveldar töluvert flutning matvæla.
„Ég nefndi um daginn að matvælaverðið hérna í Hollandi er 37% lægra heldur en á Íslandi og það var einhver sem að kommenteraði á þráðinn minn að það myndi nú skýrast sennilega af flutningskostnaði. En hvernig útskýrum við þá þetta?“ spurði Magnús og sýndi stóra skyrdollu sem er auðsýnilega frá Íslandi enda merkt Ísey, þó svo að bragðið sé ekki eitthvað sem við erum vön hér á Íslandi – bláberjaterta.
„Þetta hérna er íslenskt skyr eins og allir sjá. En þetta er ódýrara hér í Hollandi heldur en á Íslandi. Það munar 20 krónum á hver 100 grömm hvað þetta hérna er ódýrara í Hollandi heldur en heima í Krónunni. Og nú kynni einhver að segja: „Já er þetta ekki bara íslenskt skyr sem er framleitt í Hollandi?“, en það er ekki svo því að hér stendur skýrt og greinilega að þetta sé „geproduceerd in IJslande“ á Austurvegi 65, 800 Selfossi. Þannig að þetta er flutt alla leið hingað.“

Hefur þessi færsla Magnúsar vakið nokkra athygli. Einn rifjar það upp í athugasemd að á árinu 2012 voru fluttar fréttir af því að íslenskt lambakjöt væri ódýrara í Noregi en hér á landi, en svipað virðist vera upp á teningnum í dag þar sem annar tekur fram að íslenskt lambakjöt sé um 30-60% ódýrara í Hollandi en á Íslandi og enn annar tekur fram að frosinn íslenskur fiskur sé ódýrari á Englandi en á Íslandi.
Aðrir benda á að launakostnaður í smásölu sé hærri hér á landi og það gæti skýrt muninn.
Ísey Skyr er einnig selt í Bretlandi en skv. trolley.co.uk kostar lítil dolla af vanilluskyri á bilinu 1,35-1,50 pund eftir því hvar hún er keypt. Það jafngildir um 232-257 íslenskum krónum en sama skyr kostar 299 krónur í Krónunni.