Ákæra Héraðssaksóknara í Dettifossmálinu, sem varðar smygl á gífurlegu magni af amfetamínbasa með Dettifossi, flutningaskipi Eimskips, hingað til lands frá Bremerhaven í Þýskalandi, hefur nú verið afhent fjölmiðlum, en ákæran var gefin út í síðustu viku. Athygli vekur að nöfn sakborninga eru afmáð úr ákærunni, ásamt fleiri upplýsingum. Það hefur ekki tíðkast í stórum fíkniefnamálum. DV hefur ekki fengið svör við spurningu um hvað veldur nafnleyndinni.
Sakborningar í Dettifossmálinu njóta nafnleyndar – Smygluðu 14.000 lítrum af amfetamínbasa frá Þýskalandi