Bretar eru almennt mun hrifnari af Ruslatunnugreifanum, Count Binface, en öfgahægri manninum Nigel Farage. Þetta sýnir ný skoðanakönnun.Í nýrri könnun á vegum Ipsos kemur fram að Bretar vilja mun frekar að grínframbjóðandinn Count Binface vinni aukakosningarnar í Clacton í ágúst en Nigel Farage. Hafa ber þó í huga að könnunin var gerð á landsvísu en ekki í kjördæminu sjálfu, sem Farage sagði sig nýlega frá til að reyna að komast undan rannsókn á fimm milljón punda gjöf frá rafmyntamógúli.
Ruslatunnugreifinn skákar öfgahægri manninum Farage í nýrri könnun