Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri

Mynd: Lára Garðarsdóttir
Þrír menn voru handteknir í Reykjavík í gær og í nótt vegna líkamsárása og eignaspjalla. Allir voru þeir vistaðir í fangaklefa, samkvæmt dagbók lögreglunnar.
Í hverfi 108 var maður handtekinn vegna gruns um líkamsárás og brot á vopnalögum. Annar maður var handtekinn í miðborginni vegna líkamsárásar, en sá þriðji í hverfi 105 vegna eignaspjalla.
Þá var lögregla kölluð til í Kópavogi vegna manns sem var vopnaður hnífi og hamri og reyndi að brjótast inn í íbúð. Maðurinn var handtekinn og færður í fangaklefa.
Óskað var einnig eftir aðstöð lögreglu á matsölustað í hverfi 110, vegna víðáttu ölvaðs aðila sem var til vandræða. Var maðurinn fjarlægður af staðnum.