Breska Óskarsverðlaunaleikkonan Helen Mirren og eiginmaður hennar, Taylor Hackford, urðu fyrir aðkasti úti á götu í London þegar ókunnugur maður vatt sér upp að þeim og hellti úr skálum reiði sinnar.
Breska blaðið Daily Mail greinir frá þessu og segir að myndband af atvikinu hafi verið birt á samfélagsmiðlum á reikningi sem nefnir sig Anti-Fascist Action UK.
Svo virðist vera sem stuðningur leikkonunnar við Ísrael hafi verið kveikjan að atvikinu en maðurinn kallaði hana meðal annars „síonista-tík“.
Í upphafi virtist Mirren ekki kippa sér mikið upp við manninn og heyrist hún spyrja hvort það sé allt í lagi með hann. Áður en langt um líður byrjar maðurinn að ausa úr skálum reiði sinnar vegna stuðnings hennar við Ísraelsríki. Hackford fékk að lokum nóg og sagði manninum ítrekað að láta þau í friði.
Helen Mirren hefur um árabil verið opinská í stuðningi sínum við Ísrael. Í síðasta mánuði skrifaði hún undir opið bréf ásamt fjölda þekktra listamanna þar sem stuðningur var lýstur við þátttöku Ísraels í Eurovision-keppninni. Meðal annarra þekktra einstaklinga sem skrifuðu undir bréfið má nefna Amy Schumer, Mila Kunis, Sharon Osbourne og Boy George.
Mirren hefur einnig túlkað ýmsar þekktar gyðingakonur á ferli sínum, meðal annars Goldu Meir, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, í kvikmyndinni Golda frá árinu 2023 og Mariu Altmann í Woman in Gold frá árinu 2015.
Í viðtali við ísraelska sjónvarpsstöð árið 2023 sagði Mirren að hún tryði á áframhaldandi tilvist Ísraels og tengdi þá afstöðu meðal annars við áhrif Helfararinnar á sögu gyðinga. Á sama tíma sagði hún þó að stuðningur hennar við tilvist Ísraelsríkis þýddi ekki að hún styddi sjálfkrafa allar ákvarðanir ísraelskra stjórnvalda.