Rannsókn tæknideildar lögreglu á vettvangi bruna sem varð í íbúðablokk að Naustabryggju 20 í morgun er lokið og fulltrúar tryggingafélags eru komnir á vettvang til þess að meta tjónið.
Þetta segir Valgarður Valgarðsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Slökkvilið yfirgaf vettvang rétt fyrir klukkan 14 í dag, en þá höfðu slökkviliðsmenn staðið í því verkefni í um klukkustund að veita vatni úr íbúð á efstu hæð hússins sem orðið hefur fyrir talsverðum vatnsskemmdum.
Niðurstöður eftir nokkrar vikur
Valgarður væntir þess ekki að niðurstöður rannsóknar liggi fyrir fyrr en eftir nokkrar vikur, en grunur leikur á um að eldurinn hafi kviknað vegna yfirstandandi þakframkvæmda þegar verið var að bræða þakpappa á þakið.
„Það var vinna í gangi á þakinu þegar eldurinn kemur upp og rannsóknin miðar að því að komast að því hver eldsupptökin voru,“ segir hann.
Ekki liggur fyrir hvaða verktaki sinnti framkvæmdunum að sögn lögreglu.
