Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmir harðlega drónaárás sem gerð var fyrir 10 dögum á kjarnorkuver í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hún sé brot á alþjóðalögum.
Öryggisráðið segir ekki hvern það telji bera ábyrgð á árásinni. Yfirvöld í furstadæmunum sögðu 6 drónum hafa verið beint að verinu og að þeir hafi komið frá nágrannaríkinu Íran. Eldur kom upp í verinu, sem er í Abu Dhabi, eftir að einn drónanna hæfði rafal.
Öflugar vígasveitir studdar af Íran hafa komið sér fyrir í Írak og gert þaðan árásir, hvort tveggja innanlands og gegn nágrannaríkjunum. Þær hafa færst í aukana eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu stríð gegn Íran í febrúarlok.