Kanadamaður greinir frá því í nýrri færslu á Reddit hvað brúðkaupsferð hans og nýbakaðrar eiginkonu hans til Íslands kostaði síðasta vor. Ferðin stóð yfir í viku og kostnaðurinn var töluverður en hjónin voru þrátt fyrir það hæstánægð með ferðina.Segir í færslunni um veðrið:„Svo virðist sem að við höfum verið blessuð af íslensku álfunum af því veðrið var grunsamlega gott. Það rigndi þegar við komum og þegar við fórum en þess á milli var að mestu leyti heiðskírt og varla ský að sjá á himni.“
Opinbera hvað brúðkaupsferðin til Íslands kostaði - „Veðrið var grunsamlega gott“