Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að verði búið að taka upp evruna þegar næsta efnahagsáfall óhjákvæmilega ríði yfir muni Ísland ekki hafa um neitt annað að velja en að ráðast að lífskjörum alþýðufólks.
Sólveig Anna og Sveinn Andri Sveinsson lögmaður voru gestir í Fram undan á Rás 2 í morgun. Þau voru sammála um að stofnfundur félagsins Áfram Ísland, sem berst gegn því að Ísland taki upp aðildarviðræður við Evrópusambandið, hafi verið helsta fréttamál vikunnar.
Sveinn Andri veltir fyrir sér af hverju fjármálafyrirtæki og fleiri sterk fyrirtæki vilji ekki sjá aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann nefnir að fjármálafyrirtæki hagnist um tugi milljarða á ári vegna kortanotkunar almennings erlendis þegar skipt er á milli evru og krónu.
Þá tekur hann fyrir fasteignafélög. „Þeir græða þeim mun meira sem vextir og verðbólga eru hærri. Flest fyrirtæki í Evrópu verja sig gegn verðbólgu og háum vöxtum. En Heimar og þessi fasteignafélög beinlínis veðja á háa vexti og verðbólgu. Þannig að hækkun verðbólgu, kannski úr 5% í 10%, það þýðir 4,5 milljarða aukinn hagnað bara fyrir Heima.“
Andstæðingar sammála um ESB
Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnmeðlima Áfram Ísland, stýrir fasteignafélaginu Heimar. Sólveig Anna, sem iðulega var á öndverðum meiði við Halldór Benjamín í tíð hans sem formaður Samtaka atvinnulífsins, er einnig meðal stofnfélaga.
Hún bendir á afleiðingar efnahagskreppunnar 2008. Hún segir stofnanir Evrópusambandsins hafa verið helstu leikendur í því hve illa hafi verið komið fram við alþýðufólk á Grikklandi, Spáni og fleiri löndum. Evran hafi haft litla getu til þess að bregðast við þeim efnahagsáföllum sem dundu yfir nema með niðurskurði, háu atvinnuleysi og aðför að hagsmunum alþýðufólks.
„Ég get ekki fallist á það sem formaður í stærsta félagi verkafólks á landinu að það sé eitthvað eðlilegt og sjálfsagt við það að hátt atvinnuleysi sé eitthvað sem sé mögulega komið til þess að vera og að það sé gjaldið sem íslensk milli- og efri millistétt sé tilbúin til að greiða fyrir inngöngu, fyrir lægri vexti og lægri verðbólgu.“
Umræðurnar í heild sinni, má heyra í spilaranum hér að neðan.