Það má búast við golu eða kalda og skúrum nú í morgunsárið en dregur úr vætu þegar líður á daginn, en bætir í vind norðvestantil í kvöld. Hiti að 18 stigum í dag, mildast á Austurlandi.
Á morgun beinir öflug hæð yfir Skotlandi til okkar hlýrri sunnanátt og á Norðaustur- og Austurlandi verður léttskýjað og mjög hlýtt, en suðvestan- og vestantil rigning og 10 til 15 stig. Það verður allhvasst á landinu norðvestanverðu og raunar getur vindurinn verið varasamur ökumönnum í þeim landshluta fram á sunnudag.
Þá má áfram búast við þurru veðri og hlýindum á Norður- og Norðausturlandi, en bætir í vind í flestum landshlutum og bætir í úrkomu á Vesturlandi, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Lægðardrag skammt norðaustur af landinu beinir til okkar suðvestan- og vestanátt, víða gola eða kaldi og skúrir nú í morgunsárið. Í dag fjarlægist dragið og það dregur úr vætu,
yfirleitt úrkomulítið síðdegis. Hiti 8 til 18 stig, mildast suðaustan- og austanlands. Bætir í vind norðvestantil í kvöld.
Á morgun verður öflug hæð á milli Íslands og Skotlands og mun hún beina til okkar hlýrri suðvestan- og sunnanátt, víða 5-13 m/s en allhvasst um landið norðvestanvert. Á Norðaustur- og Austurlandi verður léttskýjað og mjög hlýtt, hiti á bilinu 17 til 25 stig, en
suðvestan- og vestantil má búast við súld eða dálítilli rigningu og 10 til 15 stiga hita.
Á sunnudag verður staða veðrakerfanna svipuð og á Norðaustur- og Austurlandi má áfram búast við þurru veðri og hlýindum. Hins vegar bætir heldur í vind í flestum landshlutum og á Vesturlandi verður úrkoman smám saman ákafari.
Að lokum er vert að geta þess að vindstrengirnir sem búist er við á norðvestanverðu landinu í fyrramálið, og aftur á sunnudag, geta reynst varasamir ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi, og eru ökumenn með aftanívagna hvattir til að kynna sér aðstæður áður en haldið er af stað.