SARS-CoV-2 veiran, sem veldur COVID-19, greindist ekki á Íslandi í sjö vikur samfleytt fyrr í sumar. Þetta er lengsti tími milli Covid-smita hér á landi frá því að heimsfaraldurinn hófst snemma árs 2020 samkvæmt mælaborði öndunarfærasýkinga.
Ekki lengur bráð ógn við lýðheilsu
Þessi áfangi markar ákveðin kaflaskil í langri sögu veirunnar hér á landi, en fjögur ár eru liðin síðan daglegt líf landsmanna færðist aftur í eðlilegt horf.
Öllum samkomutakmörkunum vegna COVID-19 og takmörkunum á landamærum Íslands var aflétt 25. febrúar 2022. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) lýsti því svo yfir í maí 2023 að Covid-19 væri ekki lengur talin bráð ógn við lýðheilsu á alþjóðavísu.
Þótt faraldurinn hafi verið þungur benti rannsókn í læknatímaritinu The Lancet á að mannfall vegna COVID-19 hafi verið hlutfallslega minnst á Íslandi og í Svíþjóð af 29 Evrópulöndum.
„Is it true? Is it over?“
Eftir að faraldrinum lauk var haldið áfram að bjóða viðkvæmum hópum bólusetningu. Í febrúar 2023 hófst til að mynda fimmta bólusetningin. Samkvæmt gögnum frá október 2023 höfðu Lyfjastofnun borist um sex þúsund tilkynningar um grunaðar aukaverkanir, þar af voru 360 flokkaðar sem alvarlegar.
Þá má rifja upp þegar Þórólfur Guðnason, þáverandi sóttvarnalæknir, söng Eurovision-lag Jóhönnu Guðrúnar Is it true? þegar allsherjarafléttingar voru tilkynntar. Þá sat hann í förðunarstól fyrir sjónvarpsviðtal á RÚV þegar María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður spurði hvort faraldrinum væri lokið.