Marine Le Pen hóf formlega kosningabaráttu sína til embættis Frakklandsforseta í gær. Það gerði hún þrátt fyrir að hafa kvöldið áður verið dæmd í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að misfara með fé frá Evrópuþinginu. Jordan Bardella verður forsætisráðherraefni Le Pen en engin hefð er fyrir slíku tvíeyki í forsetakosningum í Frakklandi. Jordan Bardella er forseti frönsku Þjóðfylkingarinnar en Marine Le Pen er leiðtogi flokksins á þingi.
Le Pen segist saklaus og hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar. Ekki er ljóst hvort rétturinn kveður upp dóm fyrir forsetakosningarnar sem verða í maí á næsta ári. Emmanuel Macron, núverandi forseti, getur ekki boðið sig aftur fram.
Le Pen hélt í gær framboðsfund í bænum La Flèche. Þar sagði hún að kosningabarátta hennar og Bardella snerist um endurreisn Frakklands, menntunar, réttlætis, öryggi borgara, landamæravörslu og sjálfstæðis.
Efast um heilindi Le Pen
Mótmælendur reyndu að trufla framboðsfundinn en Le Pen er umdeild vegna þjóðernissinnaðra skoðana sinna.
„Ég vona að hæstiréttur sé starfi sínu vaxinn og ég hef trú á honum, því þetta er ekki eðlilegt. Forseti sem mun stjórna Frakklandi og hefur hlotið dóm er alls ekki viðunandi,“ segir Bernadette Flament, íbúi nærri La Flèche.
Aðrir vilja gefa henni annað tækifæri. „Við horfum upp á marga fávita rústa bílum árum saman. Þeir vöktu reiði okkar, þeir eyðilögðu bíla og áreittu okkur um nætur. Og þeir ganga lausir,“ segir Anastasia Mariais, íbúi í La Flèche og spyr: „Af hverju ekki að gefa henni séns?“
Þá hafa pólitískir andstæðingar Le Pen bent á að hún hafi sjálf sagt að dæmdir glæpamenn eigi ekki að gegna opinberu embætti. Boris Vallaud, þingmaður Sósíalistaflokksins, segir framboð hennar vekja upp spurningar um heilindi hennar.
Fyrir dóminn var Le Pen sigurstrangleg en óljóst er hver áhrif hans verða á fylgi hennar. Fréttaskýrendur segja að það stefni í spennandi forsetakosningar og ýmislegt óvænt eigi eftir að gerast í kosningabaráttunni.