Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, hvetur landsmenn til að greiða atkvæði með áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina.Hann segir grafalvarlegan undirtón í kosningunum og telur að sigur Nei-fylkingarinnar myndi styrkja stöðu þess sem hann kallar „spillta ólígarkasamfélagið“ á Íslandi. Kristinn viðraði þessa skoðun sína í pistli á Facebook sem vakið hefur talsverða athygli.Í pistlinum segir hann mikla óvissu ríkja í alþjóðamálum og mikilvægt sé fyrir Ísland að halda möguleikum sínum opnum.
Kristinn segir grafalvarlegan undirtón í kosningunum: „Hið spillta ólígarkasamfélag“