Engin hætta stafar lengur af gríðarstórum tanki með eitruðum efnum sem hætta var á að myndi leka eða jafnvel springa í suðurhluta Kaliforníuríkis.
Sprunga uppgötvaðist á tankinum á föstudaginn og hafa viðbragðsaðilar síðan þá verið í kappi við tímann til að koma í veg fyrir stórslys. TJ McGovern, starfandi slökkviliðsstjóra slökkviliðs Orange-sýslu, segir nú að hættunni hafi verið afstýrt að fullu.
Neyðarástandi var lýst yfir vegna sprungunnar og var um 50.000 manns á um 23 ferkílómetra svæði í Orange-sýslu gert að yfirgefa heimili sín á meðan slökkviliðsmenn reyndu að kæla tankinn sem á tímabili hitanaði um eina gráðu á klukkustund.
Tankurinn inniheldur um 26.000 lítra af metýlmetakrýlati, rokgjörnum og eldfimum vökva sem notaður er til plastframleiðslu.
McGovern segir að rýmingin á svæðinu haldi gildi sínu í bili þrátt fyrir að tekist hafi að koma í veg fyrir stórslys.