Bæði á Akureyri og í Reykjanesbæ munu kjörnir fulltrúar taka við starfi bæjarstjóra um mánaðamótin. Berglind Ósk Guðmundsdóttir tekur við af Ásthildi Sturludóttur á Akureyri og Vilhjálmur Árnason tekur við af Kjartani Má Kjartanssyni í Reykjanesbæ.
Í báðum sveitarfélögum hefur bæjarstjórinn verið ráðinn út fyrir raðir bæjarfulltrúa um nokkurt skeið. Ásthildur Sturludóttir hefur haft 3.144.438 krónur í mánaðarlaun og Kjartan Már Kjartansson 2.872.306 krónur. Ráðningasamningar nýrra bæjarstjóra munu liggja til samþykktar hjá bæjarráði á fyrstu fundum þeirra í upphafi júní en ekki er ljóst hvort að launatölur verði þær sömu hjá Berglindi og Vilhjálmi og forverum þeirra.
Bæjarfulltrúar á Akureyri og í Reykjanesbæ eru á föstum launum
Bæjarfulltrúar í stærri sveitarfélögum fá greidd föst mánaðarlaun og einnig tíðkast víða að greitt sé sérstaklega fyrir setna fundi. Þá er greitt fyrir nefndarsetu og aukalega ef viðkomandi er formaður í nefnd.
Aðalfulltrúar í bæjarstjórn á Akureyri hafa í föst laun á mánuði 462.523 krónur og í Reykjanesbæ eru laun bæjarfulltrúa 241.364 krónur og síðan er greidd aukalega 68.961 króna fyrir hvern setinn bæjarstjórnarfund.
Einnig er greitt fyrir setu í bæjarráði í báðum sveitarfélögum en venjan er sú að oddvitar þeirra flokka sem sitja í bæjarstjórn sitji einnig í bæjarráði. Á Akureyri er föst mánaðarleg greiðsla fyrir bæjarráð sú sama og fyrir að vera í bæjarstjórn en í Reykjanesbæ er hún örlítið hærri eða rúmlega 275.000 krónur á mánuði.
Engar tölur komnar á hreint hjá nýjum bæjarstjórum
Ekki er ljóst hvort Berglind eða Vilhjálmur muni leggja greiðslur fyrir störf bæjarfulltrúa ofan á núverandi laun bæjarstjóra. Þar sem hefur verið pólitískur bæjarstjóri, m.a. í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi, tíðkast það að bæjarstjórar þiggi einnig laun fyrir að vera bæjarfulltrúar en þar hafa laun bæjarstjóra verið lægri en á Akureyri og í Reykjanesbæ. Þá segir í 32. grein sveitarstjórnarlaga að sveitarstjórnarmenn megi ekki afsala sér greiðslum sem þeim eru ákveðnar.
Vilhjálmur Árnason sagði í samtali við fréttastofu að hann reiknaði með að vera á svipuðum launum og bæjarstjórar sambærilegra sveitarfélaga og að hann gerði ekki kröfur um neinar frekari greiðslur eða hærri laun en tíðkast fyrir þessi störf.
Berglind Ósk tók í svipaðan streng en sagði að vinnan við ráðningarsamning hennar væri ekki komin það langt að það væri verið að ræða tölur.