Sjálfstæðisflokkurinn er ótvíræður sigurvegari borgarstjórnarkosninganna og er Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins, með pálmann í höndunum.
Flokkurinn fékk 32,5% fylgi sem er besta niðurstaða flokksins í borgarstjórnarkosningum síðan árið 2010. Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu af 23 borgarfulltrúum kjörna og getur flokkurinn myndað meirihluta til hægri með Miðflokknum eða miðju-hægri meirihluta með Viðreisn og Framsókn.
Þá er einnig uppi sá kostur að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndi fjórtán manna meirihluta en það verður að teljast ólíklegasta niðurstaðan þar sem oddvitar beggja flokka hafa sagt það ekki fyrsta kost auk þess sem flokkana greinir á í helstu málefnum.
Vinstrimeirihluti útilokaður
Samfylkingin fékk sína verstu niðurstöðu í borginni frá því að flokkurinn bauð fyrst fram undir eigin nafni árið 2006. Flokkurinn fékk 18% atkvæða en flokkurinn fékk 20% fylgi í síðustu borgarstjórakosningum undir forystu Dags B. Eggertssonar.
Samfylkingin heldur fimm mönnum inni í borgarstjórn. Þrátt fyrir það er útilokað að hægt verði að mynda vinstrimeirihluta í borginni.
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði við mbl.is í nótt að hann væri svekktur með niðurstöðuna. Hann vildi fá inn sjötta og sjöunda borgarfulltrúa Samfylkingarinnar.
„Hins vegar hefur ýmislegt gengið á að undanförnu og því verður maður að horfast í augu við stöðuna og þetta er lýðræðið,“ sagði Pétur.
Vinstrið fékk tvo fulltrúa og Sósíalistar einn. Píratar og Flokkur fólksins fengu enga menn kjörna í borgarstjórn.
Vill ræða við alla
Hildur sagði í samtali við mbl.is í gær að hún myndi heyra í öllum oddvitum sem buðu fram í kosningunum áður en til formlegra meirihlutaviðræðna kæmi.
Aðspurð sagði hún eðlilegt að stærsti flokkurinn í borgarstjórn myndi leiða nýjan meirihluta þó að það væri ekki aðalatriði að hún fengi borgarstjórastólinn.
Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, hefur gefið í skyn að hann vilji vinna með Sjálfstæðisflokknum eftir kosningar en eins og áður segir gætu Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn myndað tveggja flokka meirihluta með samanlagt tólf menn í borgarstjórn.
Sömuleiðis hafa Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, og Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, sagt að þau myndu vilja vinna með Sjálfstæðisflokknum í meirihluta.


