Yfir 600 þúsund manns hafa verið flutt á brott úr borginni Wenzhou við austurströnd Kína. Gert er ráð fyrir að fellibylurinn Bavi nái landi í grennd borgarinnar í fyrramálið. Þar búa um 10 milljónir manna.
„Ég er smá áhyggjufullur en ég held að þetta verði allt í lagi. Við höfum fengið fellibylji áður. Við komumst í gegnum þetta,“ hefur Reuters eftir einum íbúa borgarinnar sem var að versla inn á matarmarkaði í borginni. Hann sagði fjölskyldu sína eiga vatnsbirgðir til tveggja eða þriggja daga.
„Það er engin ástæða til þess að missa stjórn á sér og hamstra fullt af mat eða öðrum nauðsynjum,“ bætti hann við.
Fellibylurinn olli miklum usla á Sakishima-eyjum syðst í Japan þegar hann fór þar yfir með mikilli rigningu og kröftugum vindi. Stöðugur vindhraði var mestur 40 metrar á sekúndu en náði 55 metrum í hviðum.
Yfirvöld á Taívan gripu til mikilla ráðstafana og fluttu 14 þúsund manns á brott. Fellibylurinn náði þó ekki landi á eyríkinu en búist var við allt að metershárri úrkomu í hluta landsins.
Vindurinn var þó svo mikill að tré rifnuðu upp með rótum í úthverfi höfuðborgarinnar Taípei. Alþjóðaflugvellinum í grennd borgarinnar var svo gott sem lokað. 920 ferðum í millilandaflugi var aflýst og 280 ferðum í innanlandsflugi.
Engin dauðsföll hafa verið skráð vegna fellibyljarins í Taívan og Japan. Sautján létust á Filippseyjum í miklum monsúnrigningum. Þar var úrkomuákefðin öllu meiri vegna fellibyljarins.