Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila alla­vega ekki þessa hugsun“ - Vísir

Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila alla­vega ekki þessa hugsun“ - Vísir

Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila alla­vega ekki þessa hugsun“ - Vísir

Fulltrúar hjólreiðasamtaka hérlendis eru margir á því að lögin séu of miðuð að akandi umferð en deilir á um hvort hjóla megi yfir á rauðu eins og staðan er í dag.

Í færslu sem birt var í Facebook-hópnum Samgönguhjólreiðar er þeirri spurningu velt upp hver afstaða hópmeðlima sé til þess að hjóla yfir á rauðu ljósi. Þegar þetta er skrifað eru hundrað og átján ummæli undir færslunni og því ljóst að mikil umræða skapaðist. Ummælin voru flest, ef ekki öll, á skjön og virtist engin niðurstaða ætla að fást í málinu.

Eru umferðarreglur fyrir hjólreiðafólk ekki smá óljósar og jafnvel loðnar?

„Loðið og ekki loðið, já. Þetta er bara þannig að reiðhjólamenn eru einn af fáum flokkum í umferðinni sem geta valið hvort þeir hjóli á akbraut eða gangstétt,“ segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þessi hjólreiðamaður mat aðstæður sem svo að honum væri óhætt að hjóla yfir á rauðu ljósi.Vísir/Vilhelm

Ef þeir kjósi að hjóla á akbraut þá verði þeir að fara eftir þeim umferðarreglum sem gilda fyrir umferð sem er á akbrautinni. Ef hjólari færi yfir á rauðu og keyrt væri á hann þá færi hann að brjóta gegn akstri gegn rauðu ljósi.

„Það eru síðan tryggingarnar sem úrskurða hvort menn séu í rétti eða órétti,“ segir Árni og bætir við „en auðvitað gefur það augaleið að slys og líkamstjón eru náttúrulega miklu líklegri hjá reiðhjólamanni sem er óvarinn þannig séð í umferðinni.“

Að sama skapi geti fólk kosið að hjóla á gangstétt og þá gilda þær reglur sem gangandi vegfarendur fara eftir.

„Þá gilda þær reglur þar, ef það er grænt fyrir gangandi og hjólandi þá náttúrulega er rautt væntanlega fyrir bílaumferð,“ segir Árni.

Misháar sektir sýni greinarmuninn

Á Íslandi geti þeir sem hjóla yfir á rauðu ljósi átt yfir höfði sér tuttugu þúsund króna sekt en fyrir sama brot á umferðarlögum geti ökumenn bifreiða og annarra vélknúinna ökutækja átt von á fimmtíu þúsund króna sekt.

„Sektarreglugerðin gerir þarna greinilega greinarmun á milli,“ segir Árni en bendir á að það sé ekki lögreglunnar að búa til sektarreglugerðina. Það sé innviðaráðherra sem gefi hana út.

Idaho-stöðvunarreglan, sem heimilar hjólreiðafólki að horfa á stöðvunarskylduskilti sem biðskyldu og rauð ljós sem stöðvunarskyldu, var formlega samþykkt og lögfest árið 1982 í bandaríska fylkinu Idaho. Árni segir slík lög ekki vera í skoðun hér á landi svo hann viti best til.

„Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun. Það er þannig að ef þú ert að hjóla á akbraut, sem sagt á götunni, og það kemur rautt ljós fyrir umferð um götuna, þá ber þér að stoppa hvort sem þú ert á bíl eða reiðhjóli.“

Margt annað sem liggi meira á að breyta

Birgir Birgisson, formaður Reiðhjólabænda, er einn þeirra sem lögðu orð í belg þegar umræðan hófst í Facebook-hópnum. Hann er á þeirri skoðun að skoða þurfi hvaða breytingar þurfi að gera til að gera umferðaröryggi hjólandi fólks betra en að það eigi þó alltaf að fara eftir umferðarreglum.

„Ég skil vel þau rök að mikið af umferðarinnviðunum sé miðað við bíla og það henti ekki alltaf og það er ekki alltaf öruggast fyrir hjólandi umferð. Þannig að já, ég er sammála því svo langt að þau þyrftu alveg að skoða hvaða breytingar þarf að gera til að gera umferðaröryggi hjólandi fólks betra,“ segir hann í samtali við blaðamann Vísis.

Þrátt fyrir það finnst honum að ekki sé réttlætanlegt að leyfa sér að verða of óþolinmóð og hjóla yfir á rauðu jafnvel þegar lítil sem engin umferð er á vegum, svo sem snemma á morgnana. Fólk eigi einfaldlega að fara eftir umferðarreglum.

„Ef samfélagið á að fúnkera þá eigum við að fara eftir leikreglunum í því. Og ein af þeim leikreglum er að ef þú breytir einhverju þá ferðu réttu leiðina að því.“

Umferðarlögin varðandi hjólreiðafólk séu ekki flókin og það sé mjög einfalt að setja sig inn í hvernig hlutirnir eru og hvaða reglum eigi að fylgja. Það sé bara allt of sjaldgæft að fólk nenni að hafa fyrir því.

Heldur þú að það gæti verið góð lausn að innleiða Idaho-regluna hérlendis?

Idaho-reglan heimilar hjólreiðafólki að líta á rauð ljós sem stöðvunarskyldu og stöðvunarskylduskilti sem biðskyldu. Hún er við gildi í þrettán fylkjum í Bandaríkjunum, þar á meðal Washington, Alaska og Oregon.Vísir/Vilhelm

„Ég veit ekki hvort að Idaho-stoppreglan sé lausn eða ekki. Ég hef ekki mikla skoðun á því. Ég hef ekki búið eða starfað þar sem þessi regla hefur verið í gildi, þannig að ég hef enga persónulega reynslu af henni.“

Birgir segir aðra hluti meira áríðandi en að þrýsta á breytingar í þessum málum og að það séu til dæmis allt of mörg slys sem verði vegna þess að fólk þekkir ekki nógu vel þær umferðarreglur sem snúa að framúrakstri þegar ökumaður keyrir fram úr hjóli.

„Það er til dæmis það að nú er búin að vera umferðarlagagrein í gildi í rúmlega sex ár sem stundum hefur lítið sem ekkert verið gert til þess að kynna og hún er miklu mikilvægari fyrir líf og heilsu hjólandi fólks,“ segir hann en greinin sem um ræðir er sú 25. í umferðarlögunum og snýr að eins og hálfs metra reglunni við framúrakstur fram hjá hjólandi umferð.

„Við henni liggja viðurlög sem eru svo fáránlega létt að hún hefur í rauninni enga virkni.“

Keyrður niður og skilinn eftir

Hann segist hafa spurt þingmenn á nefndarfundi Alþingis hvað þeir ætluðu að gera til þess að gera það mögulegt að framfylgja þessari reglu og hafi engin svör fengið.

„Ég er búinn að fara með þetta mál alla leið í kerfinu, alveg upp í nefnd með eftirlit með störfum lögreglu og spyrja: Er það í lagi að lögregla hunsi þessa reglu og fylgi henni ekkert eftir? Og fékk bara útúrsnúningasvör þar,“ segir hann.

Dæmi um brot á reglunni séu fjölmörg og náist oft á myndband. Hann hafi lánað frönskum ferðamanni hjól svo hann gæti ferðast hringinn í kringum landið hjólandi. Sá hafi verið tvisvar sinnum keyrður eftir og skilinn eftir þrátt fyrir að vera klæddur í áberandi lit og með endurskinsljós.

„Það eru líka mjög margir sem gera þennan framúrakstur vitlaust af því að þeir þekkja ekki eða misskilja regluna og það er margt í núverandi umferðarlögum sem er í svo mikilli mótsögn,“ segir Árni og ítrekar að honum finnist þessi atriði miklu mikilvægari en að kynna nýja reglu svo sem þá sem er í Idaho.

„Þarna er verið að stofna fólki í lífshættu. Við erum bara að bíða eftir banaslysum til að geta sagt: sögðum þér þetta,“ segir hann. Meðal þeirra sem hjóli hringinn sé fólk sem safnar fyrir góðgerðarsamtök svo sem Barnaspítala hringsins eða Ljósið.

Fífl í öllum hópum

Bjarni Már Svavarsson, formaður Hjólreiðasambands Íslands, segist allt of oft sjá fólk hjóla yfir á rauðu ljósi.

„Ég er að sjá alla gera þetta og eins og ég hef sagt alltaf þegar þessi umræða er á Facebook og alls staðar: það eru fífl í öllum hópum: hjólandi, gangandi, akandi,“ segir hann í samtali við blaðamann en bætir við að „þessir akandi eru á hættulegustu tækjunum“.

Árni Friðleifsson hjá lögreglunni segir hjólreiðafólk vera meðal þeirra fáu sem hafi val um að ferðast á akbraut eða gangbraut.Vísir/Vilhelm

Það virki svo sem sumum sé alveg sama og þeir líti hvorki til hægri né vinstri áður en þeir haldi yfir götu þrátt fyrir rautt ljós. Umferðarskólar sem voru í boði fyrir börn áður fyrr væru mjög gagnlegir í dag.

„Þegar ég var ungur, ég er orðinn svolítið gamall, þá var umferðarskóli sem krakkar fóru í. Það væri frábært að endurvekja það,“ segir hann og tekur sem dæmi að „það sé alveg eins og sumir vilji ekki nota hjálm á hjóli.“

Málið sé ekki flóknara en svo að ef það sé bannað að aka eða hjóla yfir þá eigi að stoppa. Þetta sé spurning um tillitsemi.

Ljósastýringar séu bara bílainnviðir

Erlendur S. Þorsteinsson formaður Landssamtaka hjólreiðamanna segist vera harður talsmaður þess að breyta þurfi þessum umferðarreglum. Ljósastýringar séu bara bílainnviðir og einungis til þess gerðar að hafa stjórn á bílstjórum.

Erlendur S. Þorsteinsson er einn þeirra sem telja umferðarljósastýringar vera of miðaðar að bílaumferð. Breytinga sé þörf.

„Alltaf þegar fólk fer að tala um gangandi og hjólandi vegfarendur þá þarf að búa til göngubrú eða undirgöng eða setja gönguljós eða eitthvað svona dót til þess að auka öryggi þeirra,“ segir Erlendur í samtali við blaðamann og heldur áfram: „Þá hlýtur maður að þurfa að spyrja sig: Auka öryggi? Ókei, hver er hættulegri aðilinn og gegn hverjum er verið að reyna að vernda gangandi og hjólandi með þessum aðgerðum?“

Það séu bílstjórar sem ferðist um á þyngstu, hraðskreiðustu og lang, langhættulegustu farartækjunum.

„Það verður til þess í mörgum tilfellum að þarna, að þú bara situr gangandi eða hjólandi á rauðu ljósi og það er enginn í kringum þetta og þú bara stendur þarna eins og asni kannski í kulda og rigningu og það er ekkert að gerast.“

Erlendur segist sjálfur hafa ítrekað lent í því að sjá ökumenn bíla keyra yfir á rauðu ljósi þar sem hann hefur ýtt á hnapp og beðið eftir að hjóla yfir þegar gönguljósin yrðu græn. 

„Þannig að það var ekki eins og að þetta skapi neitt sérstakt öryggi umfram það að ég þarf hvort sem, þessi gangandi hjólari, ég þarf hvort sem er að horfa í kringum mig og vera viss um það, eru allir stopp eða er enginn?“

Megi ekki treysta bílstjórum í blindni

Hann er hlynntur því að fyrrnefnd Idaho-regla verði innleidd hérlendis, hún hafi þegar verið útfærð í Belgíu og Frakklandi.

„Það er verið að gera alls konar tilraunir í mörgum löndum þar sem að menn vilja fara varlega og menn vilja tryggja það að fólk skilji hverjar reglurnar eru,“ segir Erlendur.

Hann segist vita til þess að það sé verið að gera tilraunir með þessa reglu í Svíþjóð og Noregi núna í sumar. Norska Vegagerðin hafi jafnframt verið að leita eftir tillögum að nýjum skiltum í tengslum við þetta.

„Það er bara vegna þess að hjól eru miklu minni og þau eru miklu mjórri þannig að þau komast alveg fyrir. Þetta er ekki leyft alls staðar en það er verið að gera tilraunir með þetta á Íslandi,“ bætir hann við eftir að hafa tekið dæmi um að relgum er varða akstur gegn einstefnu hafi verið breytt hér á landi svo að hjólreiðafólk megi fara á móti einstefnunni á ákveðnum stöðum svo sem á Tjarnargötu við Hringbraut í Reykjavík.

Á Íslandi er hlutfall þeirra sem hjóla daglega í og úr vinnu eða skóla og eru frekar á hjóli en á einkabíl um fjögur prósent landsmanna. Hefur talan haldist svipuð síðust ár ef miða má við ferðavenjukönnun sem framkvæmd er og nær til alls landsins.Vísir/Vilhelm

„Menn eru að skoða þetta vegna þess að þessar reglur og þessir innviðir eru svo bílmiðaðir aðmenn eru að velta fyrir sér hvernig er hægt að greiða för gangandi og hjólandi en gera þetta samt með öruggum hætti.“

En ef börn eru nærri og sjá fullorðið fólk ítrekað hjóla yfir á rauðu ljósi?

„Það þarf hvort sem er að kenna börnum. Miðað við núverandi reglur þarf ekki bara að kenna börnum að finna næstu gangbraut og ýta á takkann og bíða eftir græna ljósinu,“ segir Erlendur.

Það þurfi líka að kenna þeim að bíða eftir því að bílstjórinn raunverulega stoppi.

„Samanber öll atvikin sem urðu til dæmis í Laugardalnum á Reykjavegi seinasta haust þar sem krakkar voru að fara úr hverfinu yfir þarna í skóla og var keyrt á þau ítrekað á sömu gangbrautinni af bílstjórunum.“

Það þurfi að kenna börnum hvað þurfi að varast og að það eigi ekki að treysta því í blindni að bílstjórar fylgi umferðarreglum.

„Ef reglunum verður breytt og þau sjá fullorðið fólk fara yfir á rauðu ljósi vegna þess að fullorðið fólk má gera það, þá þarf samt að kenna þeim að meta aðstæður og meðan þau eru ekki góð í því að meta aðstæður þá eigi kannski að bíða eftir græna ljósinu. En eftir því sem þau verði eldri og fái meiri reynslu þá geti þau farið að nýta sér það bara að rúlla yfir.“

Erlendur samsinnir Birgi hvað það varðar að mikið gagn væri af því að taka upp kennslu í skólum þar sem börnum er kennt hvað má og má ekki í umferðinni.

„Í dag er enginn staður til þess að læra þetta. Það vantar mjög mikið,“ segir hann og bætir við „foreldrar eru auðvitað á endanum ábyrgir fyrir uppeldi og menntun barna sinna en njóta aðstoðar skóla og ýmissa annarra við það.“

#heimila #hjólað #lögin #rauðu #yfir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262906706d/hjolad-yfir-a-raudu-login-heimila-allavega-ekki-thessa-hugsun-

📰 Aðrar fréttir

Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
📅 12.10.2026 👁️ 1
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
Ein þekktasta bók hryllingssagnameistarans Stephen King er frumraun hans, Carrie. Það var þó heljarinnar bras að skrifa bókina og koma henni út. Tabit...
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
Lance Bass var meðlimur einnar þekktustu og vinsælustu strákahljómsveitar allra tíma, NSYNC, en það er ekki þar með sagt að hann hafi þénað vel. Í þæt...
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
📅 12.10.2026 👁️ 1
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
The 51-year-old actor and comedian denies charges of rape and sexual assault against six women.
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
📅 12.10.2026 👁️ 1
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
Tveir ungir drengir réðust að dreng á svipuðum aldri í Hafnarfirði og neyddu hann til að fara af hlaupahjóli sínu. Þeir tóku hjólið síðan ófrjálsri he...
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka 
lækna - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna - Vísir
Í Facebook-færslu sinni segir hún að í ræðu sinni fyrir kjörið hafi hún lagt sérstaka áherslu á mennskuna, bæði í sambandi læknis og sjúklinga/fólks s...
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
📅 12.10.2026 👁️ 1
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
Alríkisdómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði í gær að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórn hans yrðu að hætta birtingum á auglýsingum með...
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruverndarsamtökum sem stóðu fyrir mótmælum gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði í gær. Fjöldi fólks kom saman til að...
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
Í dag er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægi...
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
📅 12.10.2026 👁️ 1
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
Maður sem áður var ákærður fyrir að stinga tvo unga drengi í Providence í Bandaríkjunum var í júlí talinn ólíklegur til að stofna öðrum í hættu og fék...
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
📅 12.10.2026 👁️ 1
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
Residents and holidaymakers across the Canary Islands face changes to supermarket, shopping centre and public service opening hours today, Monday 12th...
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
Stjarnan úr Mean Girls, Daniel Franzese, hefur opnað sig um hvernig honum tókst að léttast um 65 kg.„Ekkert áfengi, enginn sykur, æfingar fjórum sinnu...
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Ástin blómstrar Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni ...
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
„Við höfum heyrt bara í gegnum lyfjastofnanasamstarf, og í lyfjafræðiheiminum, að það er rosa algengt að þegar fólk er að taka inn svartamarkaðslyf, þ...
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ Kostn­að­ur vegna við­gerða og við­halds á tveim­ur grunn­skól­um í Reykja­nes­bæ er kom­inn í tíu mi...
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flu...
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
📅 12.10.2026 👁️ 2
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
The Canary Islands Government has officially lifted the rain pre-alert affecting Tenerife, Gran Canaria, Lanzarote, Fuerteventura and La Graciosa, fol...
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
📅 12.10.2026 👁️ 2
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað rannsókn á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í heimildamyndinni NAZA.Heimildarmyn...
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
Í dagbók lögreglu segir að fjórir hafi verið hýstir í fangaklefa í morgun. Þar er einnig sagt frá því að eldur hafi kviknað í mannlausum bíl fyrir uta...
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
📅 12.10.2026 👁️ 2
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
A nationwide general strike has been called in Spain, including the Canary Islands for Wednesday 11th November, with the country's housing crisis at t...
Vilja árleg þjóðarsamtöl
📅 12.10.2026 👁️ 3
Vilja árleg þjóðarsamtöl
Niðurstöður Samtalsins voru kynntar í Hörpu í gær. Samtalið fór fram á laugardag, þegar fólk settist niður í rúmlega 20 skólum víða um land og reyndi ...
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
📅 12.10.2026 👁️ 3
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
Addressing the Commons, Burnham is expected to say that a new deal with the EU could help tackle illegal immigration and boost economic growth.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
📅 12.10.2026 👁️ 3
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, BBC finds.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
📅 12.10.2026 👁️ 2
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, investigation finds.
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
📅 12.10.2026 👁️ 3
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skem...
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
📅 12.10.2026 👁️ 3
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árá...
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
📅 12.10.2026 👁️ 3
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti grein...
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
📅 12.10.2026 👁️ 4
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða...
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
📅 11.10.2026 👁️ 3
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
The critically endangered apes were rescued from intense wildfires that destroyed their habitat in August and September.
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.Greint var frá því í dag...
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
Hópurinn heldur í leiðangurinn á vegum Purdue-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og ALI (Archaeological Legacy Institute). Gert er ráð fyrir að áhöfnin...
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.Líklega er ekkert stórhýsi á h...
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
📅 11.10.2026 👁️ 3
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
Brad Smith calls for global rules on AI, and says the UK is in the "best position" to lead the charge.
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
📅 11.10.2026 👁️ 2
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
📅 11.10.2026 👁️ 2
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
Close to record-breaking warm nights are possible this week as warmer air heads for the UK.
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife ...
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna mei...
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 4
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 4
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 5
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...