Þetta kemur fram í færslu forsetans á miðlinum Truth Social frá því í nótt en þar segir Trump að þúsundir flugskeyta til viðbóta muni fylgja í kjölfarið skyldu Íranir verða að hótunum sínum um að ráða Trump af dögum.
„Fyrirmæli hafa þegar verið gefin og bandaríski herinn er reiðubúinn, fús og fær, í eitt ár með möguleika á framlengingu, til að gereyða og tortíma öllum svæðum Írans,“ segir í færslunni og forsetinn lýkur henni með orðunum „LOF SÉ ALLAH!“
Ísraelska leyniþjónustan deildi gögnum með Trump um áform Írana um að ráða hann af dögum að sögn CNN. Í færslunni segir Trump hótanir um að morð eða tilraun til þess hafa „borist víða um heim.“