Lögreglan var með mikinn viðbúnað eftir að tilkynning barst um skothvell á Kársnesi í Kópavogi í hádeginu á sunnudag og fljótlega á eftir um mann með skotsár sem leitaði aðstoðar í bakaríi í nágrenninu.
Lögregla var með mikinn viðbúnað og sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til. „Lögregla náði tiltölulega fljótt utan um vettvang og verkefnið sem slíkt,“ segir Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Rannsókn miði ágætlega. „Hún er á viðkvæmu stigi. Við erum í að safna gögnum og fara yfir þau gögn sem nú þegar er búið að safna,“ segir hann.
Maður um fertugt var handtekinn í íbúð í fjölbýlishúsi nærri bakaríinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði hann sjálfur samband við lögreglu eftir að skotinu var hleypt af. Sá sem særðist var fluttur á Landspítala og gekkst undir aðgerð. Hann varð fyrir einu skoti.
„Þarna er um mjög alvarlegt atvik að ræða. Áverkarnir voru alvarlegir og eru alvarlegir, en hann er ekki í lífshættu en þetta leit ekki vel út þarna á fyrstu stigum málsins,“ segir Ævar. Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr.
Nágrannar lýstu partístandi, hvelli og blóði á stigagangi
Nágranni lýsti því við fréttastofu á sunnudag að mikið partístand hefði verið í húsinu nóttina áður. Hann hefði svo heyrt skothvell og einhvern kalla á hjálp. Annar sagðist hafa séð blóð á stigagangi fjölbýlishússins.
Tengsl á milli mannanna sem eru báðir Íslendingar
Ævar Pálmi segir atvikið ekki talið tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Tengsl eru á milli mannanna tveggja sem eru báðir Íslendingar, en lögregla rannsakar hvort fleiri hafi verið í íbúðinni þegar skotinu var hleypt af.
Hálfsjálfvirk skammbyssa í íbúðinni og til rannsóknar hvort þetta hafi verið slysaskot
Sakborningurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudags en ekki var unnt að yfirheyra hann fyrr en í gær, vegna ölvunar. Í íbúðinni fannst níu millimetra hálfsjálfvirk skammbyssa.
„Það er eitt af því sem við erum að skoða núna, hvaðan hún kom og hvernig hún endaði þarna, í höndunum á þessum einstaklingum,“ segir Ævar Pálmi. Ekki fundust önnur vopn í íbúðinni.
Er einhver grunur um að það hafi verið hleypt af byssunni óvart, að þetta hafi verið slysaskot?
„Það er það sem við erum að rannsaka, og rannsóknin miðar meðal annars að,“ segir Ævar.