Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, og Jakob Fannar Hansen gengu í það heilaga á Ítalíu þann 21. maí síðastliðinn.
Ítalía er í miklu uppáhaldi hjá nýgiftu hjónunum því þau trúlofuðu sig einnig þar í landi í fyrrasumar. Gerður og Jakob hafa verið saman í um sjö ár.
Gerður birti fallegar myndir frá stóra deginum á Facebook-síðu sinni þar sem sjá má hana meðal annars í glæsilegum brúðarkjól umkringda rósum og í faðmi Jakobs. Veðrið lék við hjónin eins og myndirnar bera með sér.
Athöfnin fór fram við Garda-vatn við rætur Alpafjalla, en staðurinn vinsæll meðal para og brúðhjóna af augljósum ástæðum.
„Smá sneak peek frá deginum okkar,“ segir Gerður í færslunni og bætir svo við: „Hlakka til að deila meira með ykkur við tækifæri, en núna ætlum við að halda áfram að njóta á Ítalíu.“