Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, virtist ekki sérlega hlynnt kveðjutillögu Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur til borgarstjórnar um að breyta götuheitum við nýja Landspítalann svo göturnar yrðu kenndar við frömuði heilbrigðisstéttarinnar hér á landi í stað lækningajurta.
Í umræðu á borgarstjórnarfundi í dag um tillöguna gantaðist hún þónokkuð með hana, og lagði það meðal annars til að götur og mannvirki á svæðinu yrðu kennd við innyfli, enda gætu ýmis heiti á borð við Leggöng og Botnlanga komið upp úr slíkum nafngiftarþemum.
Með atkvæðagreiðslu var þó samþykkt að vísa tillögunni til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs, og því gæti svo farið að merk nöfn í íslenskri lækningasögu muni prýða götur og torg nýja Landspítalasvæðisins.
Götuheitin gætu átt við annars staðar
Líf sagði það ekki alsiða að kveðjutillögur borgarfulltrúa væru samþykktar í borgarstjórn á síðasta fundi þeirra og að raunar hefði verið látið af þeirri hefð að borgarfulltrúar sem kveddu á miðju kjörtímabili gætu lagt fram slíkar kveðjutillögur á fundum.
„Ég myndi sjálf vilja halda þessum nöfnum, enda þurfum við líka kannski að minnast útsjónarsemi okkar forfeðra og þránni við að leita lausna við ýmsu sem við höfðum ekki svör við, því þá var gripið til lækningajurta,“ sagði hún og bætti því við að sér fyndist það fallegt, enda geti slíkar jurtir í raun og veru heilað mein.
Þó virðingarvert væri að nefna götur eftir fólki sem lagt hefði eitthvað af mörkum til læknavísinda ættu slík götuheiti heima á einhverjum öðrum stað, og meirihlutinn teldi að hin sértilgerða Götunafnanefnd ætti að meta það.
Velti upp nöfnum annarra lækna
Hún velti því sérstaklega upp hvort göturnar gætu heitið eftir öðrum læknum en þeim sem taldir voru upp í tillögu Mörtu og Kjartans, til að mynda afa sínum, Steingrími Matthíassyni, sem var fyrstur til þess að taka á móti barni með keisaraskurði.
„Af hverju lagði Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi það ekki til, Matthíasargötu? Svo er náttúrulega líka bara hægt að nefna götur eftir innyflum, við gætum verið hérna með Skeifugöng, Magaverk, Botnlanga, Leggöng og eitthvað svona skemmtilegt,“ sagði hún áður en hún lét loks af gríninu.
Tillögunni yrði þó vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar til skoðunar þar sem örlög hennar yrðu upp kveðin.
