Þórður Þórarinsson er nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar en hann hefur verið ráðinn til verksins af nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingarinnar. Þórður lét af störfum sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í apríl á síðasta ári en hann hafði gegnt starfinu í 11 ár. Áður en hann hóf störf fyrir flokkinn var hann framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, sem er samstarfsvettvangur þjóðþinga Íslands, Færeyja og Grænlands.
Þórður, sem er menntaður stjórnmálafræðingur, starfaði þar áður fyrir upplýsingadeild Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar en eins hefur hann gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og set meðal annars í stjórn Heimdallar í fjögur ár og sat í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna.