Stjórnvöld í Ástralíu staðfestu í dag að banvænt afbrigði fuglainflúensu, H5N1, hefði greinst í staðbundnum sjófugli í fyrsta sinn. Þangað til í síðasta mánuði hafði H5N1-afbrigði fuglainflúensu ekki greinst í heimsálfunni.
Vísindamenn við áströlsku vísindastofnunina staðfestu að fuglainflúensan hefði greinst í boðaþernu sem fannst í hafnarbænum Robe í suðurhluta landsins. Hingað til hefur afbrigðið aðeins greinst í farfuglum.
Fjöldi tilfella í landinu er því kominn upp í tólf.
Julie Collins, landbúnaðarráðherra Ástralíu, segir þróunina áhyggjuefni en þó ekki óvænta. Hún segir að engar vísbendingar séu um fjöldadauða meðal fugla í landinu né að veiran hafi náð inn í alifuglabú í landinu.
Collins segir vísindamenn nú reyna að komast að því hvernig ástralski fuglinn smitaðist. Vitað sé að útbreiðslusvæði boðaþernu og farfuglategunda sem hafa greinst með H5N1 skarist við strandlengju Ástralíu.
Þetta afbrigði veldur alvarlegum veikindum í fuglum, bæði hænsnfuglum og villtum fuglum, en getur einnig smitast í spendýr. Dánartíðni er há meðal sýktra dýra.