Nýjasta dramað í heimi raunveruleikasjónvarps hljómar eins og söguþráðurinn í rómantískri Hollywood-mynd. Framleiðandinn sem á að hjálpa piparsveini við ástarleitina en fellur svo fyrir honum sjálf. Þetta gerðist víst við tökurnar á 24. þáttaröð Bachelor þegar framleiðandinn Julie LaPlaca átti í laumulegu ástarsambandi við piparsvein þáttaraðarinnar, Peter Weber.LaPlaca fjallar um þetta ástarævintýri í endurminningum sínum: The Love Producer: My Unscripted Journey from a Reality TV Career to My Own Happily Ever After.
Framleiðandi opnar sig um leynilegt samband við piparsveininn - „Ég var gjörsamlega niðurbrotin“