Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði í dag nemendur við hátíðlega athöfn þar sem fjölskyldur, vinir og starfsfólk skólans kom saman til að fagna áfanganum með útskriftarnemum sem nú halda út í ný verkefni.
Alls útskrifuðust 86 nemendur, þar af 2 af tveimur brautum. Af þeim luku 61 stúdentsprófi. 4 útskrifuðust af félagsfræðibraut, 1 af íþrótta- og heilbrigðisbraut, 7 af náttúrufræðibraut, 34 af opinni braut, 4 af viðskipta- og hagfræðibraut og 1 af heilbrigðisvísindabraut. Þá útskrifuðust 4 af nýsköpunar- og listabraut og 11 luku viðbótarnámi að loknu starfsnámi.
Af heilbrigðissviði útskrifuðust 22 nemendur; 1 af heilbrigðisritarabraut, 3 af lyfjatæknabraut, 9 af heilsunuddbraut, 6 af sjúkraliðabraut og 3 af tanntæknabraut. Þá útskrifuðust 7 nemendur af sérnámsbraut.
Guðrún Reynisdóttir hlaut viðurkenningu fyrir besta árangurinn á stúdentsprófi en hún útskrifaðist af náttúrufræðibraut. Fjöldi nemenda hlaut einnig viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í einstökum námsgreinum og brautum.

