Egils Appelsín hefur fylgt þjóðinni í meira en sjötíu ár, í mesta skammdeginu er því blandað við Malt eða Jólaöl til að búa til hátíðardrykk þjóðarinnar og á sumrin er það hinn klassíski svaladrykkur. Þess vegna eru það alltaf tíðindi þegar það kemur nýtt bragð eins og Blóðappelsínið sem má finna víða í verslunum. Eins og nafnið gefur til kynna er bragðið af blóðappelsínum í stað venjulegra appelsína. Blóðappelsínið er einnig með grafík sem gefur til kynna blóð sem þá tilvísun í hrekkjavökuna.
Skiptar skoðanir um nýja Appelsínið: „Hvílík snilld sem þetta er!” - „Greinilega komið beint frá djöflinum“