„Þetta er allt of hár dómur,“ segir Þorgils Þorgilsson, lögmaður Andra Más Mortensen Birgissonar sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir aðild sína að Reykholtsmálinu í Héraðsdómi Suðurlands. „Allavega við fyrstu sýn, við eigum náttúrulega eftir að fara yfir dóminn og forsendur hans.“
Dómurinn hefur enn ekki verið birtur en lögmenn segja að hann sé alls um 200 blaðsíður.
Alls voru sex dæmd í málinu í dag fyrir þátt sinn í að halda 61 árs gömlum palestínskum manni föngnum, beita hann ofbeldi og hafa af honum fé í Reykholti árið 2024. Sjá má sundurliðun dóma í fréttinni hér fyrir neðan.
Ekki vitað hvort dóminum verði áfrýjað
Fordæmalaust magn af upptökum var til í málinu þar sem vitað var að sími Andra Más tók upp öll samtöl og hljóð um leið og reynt var að hringja úr símanum – hvort sem símtölunum var svarað eða ekki. Margra klukkustunda langar upptökur voru spilaðar við aðalmeðferðina.
Þorgils telur það skýra niðurstöðuna að einhverju leyti. „En það réttlætir ekki þennan árafjölda, þetta er ekki í samræmi við dómaframkvæmd og fordæmi en við eigum bara eftir að sjá til með það,“ segir hann.
Hann segist ekki geta svarað hvort dóminum verði áfrýjað.
Telur dóm Ingunnar ásættanlegan
Guðmundur St. Ragnarsson, lögmaður Ingunnar, segir að hann eigi eftir að fara betur yfir niðurstöðurnar áður en hann geti tjáð sig mikið um dóminn en sín fyrstu viðbrögð séu að niðurstaðan sé ekki óásættanleg.
Hún var dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir sinn þátt í málinu.
Guðmundur telur að játning Ingunnar fyrir dómi hafi spilað þátt í málinu en hún játaði aðild sína að hluta og breytti þannig framburði sínum fyrir dómi.
„Án þess að ég hafi lesið þær forsendur á dóminum þá finnst mér líklegt að dómarinn hafi horft til þess,“ segir Guðmundur.
Hann á ekki von á því að dóminum yfir Ingunni verði áfrýjað.
Hefði viljað sjá færri ár fyrir Pétur
Sveinn Guðmundsson, lögmaður Péturs Más Mortensen, segist ekki sáttur við dóm síns skjólstæðings en hann hlaut þriggja ára fangelsi líkt og Ingunn.
„Ég hefði viljað sjá aðeins lægra,“ segir hann.
„En þetta er útkoman, en dómurinn er langur og ég á eftir að skoða forsendur dómsins og mun svo taka ákvörðun í framhaldi af því með umbjóðanda mínum, mun ræða við hann og við sjáum til hvað gerist næst,“ segir Sveinn.