Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands hafa uppfært veiðiráðgjöf fyrir loðnuvertíð vetursins. Í júní gerði Hafró ráð fyrir að veiða mætti 358.044 tonn en ný ráðgjöf sem birtist í dag gerir ráð fyrir ríflega 105.000 tonna veiði.
Í bergmálsmælingum í september reyndist fjöldi loðnu undir væntingum. Í tilkynningu er þó tekið fram að vegna óhagstæðra aðstæðna nyrst á leiðangurssvæðinu náðist ekki að kanna allt svæðið þar sem loðnan heldur sig. Stærð stofnsins gæti því verið vanmetin.
Vond veður og Hafís hömluðu mælingum nyrst á leitarsvæðinu
Rannsóknaskipin Tarajoq og Árni Friðriksson voru við loðnumælingar mestan hluta septembermánaðar. Þau fylgdust með loðnu við austurströnd Grænlands og norður af Íslandi. Skipin lentu oft í vondu veðri, sér í lagi nyrst á svæðinu. Þar þurfti að sæta færis til að kanna loðnuna milli óveðra auk þess sem hafís hamlaði mælingum.
Niðurstöðurnar voru að stofninn væri tæp 560 þúsund tonn og því mætti veiða um 105 þúsund tonn. Þetta er töluvert undir væntingum, ekki síst þar sem ungloðnumælingar síðasta haust gáfu fögur fyrirheit.
Lokaráðgjöf verður gefin út eftir frekari mælingar
Eftir áramót verður loðna mæld aftur. Þegar niðurstöður þeirra mælinga eru komnar gefur Hafró út lokaráðgjöf fyrir vertíðina. Í tilkynningu frá Hafró segir að ekki hafi verið teknar lokaákvarðanir um fyrirkomulag þeirra mælinga, en niðurstöður síðustu mælinga munu hafa áhrif þar á.
Mestu verðmætin í loðnuveiðum eru fólgin í hrognunum. Þau er einungis hægt að vinna á stuttu tímabili á vorin.