Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins. Þar segir að Jafnréttissjóður veiti styrki til verkefna sem stuðli eigi að jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Sjóðurinn úthluti styrkjum annað hvert ár og sé næsta úthlutun í júní á næsta ári.
„Jarþrúður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnsýslu- og jafnréttismálum og gegnt fjölbreyttum stjórnunar- og sérfræðistörfum, meðal annars innan stuðningsumhverfis nýsköpunar á Íslandi og í fjármálageiranum.
Í stjórn sjóðsins sitja auk Jarþrúðar: Rannveig S. Sigurvinsdóttir, dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og Martha Lilja Olsen, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Varamenn eru Bjarni Þór Pétursson, verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun, Stefan C. Hardonk, prófessor við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands og Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu,“ segir í tilkynningunni.