Um 60% af öllu því kjöti sem flutt er inn til landsins kemur frá nokkrum löndum, þó langmest frá Póllandi og Litáen. Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs jókst kjötinnflutningur um 14% að magni miðað við sama tíma í fyrra.
Nýlega var Dagur landbúnaðarins haldinn og var af því tilefni blásið til sérstaks málþings þar sem yfirskriftin var; Landbúnaður í heimi breytinga – Öryggi, verðmætasköpun og framtíðartækifæri.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands setti þingið þar sem hann kom víða við í ræðu sinni.
„Ég vil sjá landbúnað sem er öflugur, arðbær og sjálfbær. Landbúnað þar sem ungt fólk sér raunveruleg tækifæri, landbúnað þar sem tæknin þjónar fólkinu en leysir ekki úr gildi þekkingu og reynslu bóndans,” sagði Trausti og hélt áfram.
„Þegar ég lít yfir íslenskan landbúnað sé ég ekki atvinnugrein sem er á undanhaldi. Ég sé fólk sem er tilbúið að aðlagast, fólk sem er tilbúið að læra, fólk sem er tilbúið að fjárfesta, fólk sem stendur vörð um landið sitt, búskapinn sinn og samfélagið."
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp á málþinginu.
„Ég tek því heilshugar undir áherslur Bændasamtakanna um að stjórnvöld og landbúnaður standi saman um framtíð greinarinnar. En ég átta mig sömuleiðis á því að margir bændur standa illa. Þar hefur margt spilað inn í en ég þekki það af samtölum við bændur núna síðast í sumar þegar ég ræddi við mörg ykkar á opnum fundum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar,“ sagði Kristrún.
„Framtíð landbúnaðarins veltur á því að fólk sjái sér framtíð í greininni, að ungt fólk treysti sér til að taka við og að þeir sem fyrir eru hafi svigrúm til að sækja stórhuga fram.”
Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, fjallaði í erindi sínu meðal annars um innflutning á kjöti til landsins.
„Samkvæmt Hagstofunni þá jókst innflutningsmagn kjöts og unninna kjötvara um tæp 60% á árunum 2019 til 2025. Landaskiptingin, það er að segja hvaðan við erum að kaupa kjötið, það breytist líka,“ sagði Margrét.
„Hlutur Póllands og Litáen saman í skráðu innflutningsmati kjöts til landsins, kjöts og kjötvara, það fór um 13% árið 2020 í 31 prósent árið 2025. Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs jókst kjötinnflutningur um 14% að magni miðað við sama tíma í fyrra.”