Persónuverndarstofnun Noregs hefur sektað auglýsingafyrirtækið Xandr um 92 milljónir króna fyrir að nota viðkvæmar persónuupplýsingar viðskiptavina stefnumótaþjónustunnar Grindr í markaðsstarfi sínu.
Sektin, sem er andvirði tæplega 1,2 milljarða íslenskra króna, er hæsta sekt sem Persónuverndarstofnunin hefur lagt á fyrirtæki. Áður hafði Grindr verið sektað um 65 milljónir norskra króna, andvirði 830 milljóna íslenskra króna.
Xandr er í eigu Microsoft.
Line Coll, forstjóri norsku persónuverndarstofnunarinnar, segir í tilkynningu að brot fyrirtækisins séu sérstaklega alvarleg. Xandr hafi haft milligöngu um að senda persónuupplýsingar þúsunda Grindr-notenda í Noregi til fjölda fyrirtækja, hugsanlega þúsunda fyrirtækja. Þeirra á meðal séu upplýsingar um kynhneigð viðskiptavinanna.
Norsku neytendasamtökin kvörtuðu undan fyrirtækinu árið 2020 og varð það til þess að rannsókn Persónuverndarstofnunarinnar hófst.
Xandr notaði upplýsingar úr Grindr til að gera auglýsendum kleift að kaupa markauglýsingar sem beint var að fólkinu án þess að það vissi af því að viðkvæmar persónuupplýsingar þess úr appinu væru notaðar til þess.