Franska lögreglan handtók í morgun 14 ára pilt eftir að skotið var á skólastjóra og kennara í unglingaskóla með veiðiriffli.
Skólinn er í bænum Aubagne nærri Marseille. Sjónvarpsstöðin France 3 segir að pilturinn hafi hleypt af mörgum skotum inni í skólanum áður en starfsfólk náði að yfirbuga hann. Þeir sem særðust eru ekki í lífshættu. Þriðji maðurinn hlaut skrámur.
Edouard Geffray menntamálaráðherra Frakklands segir í færslu á X að þessi verknaður sé enn ein vísbendingin um aukið ofbeldi í samfélaginu sem allir þurfi að gera sitt til að sporna gegn.
Lögreglan segir við AFP-fréttastofuna að ekki séu tengsl milli þessarar árásar og mótmælanna sem staðið hafa yfir undanfarnar vikur og beinast að aðbúnaði í framhaldsskólum.