Varað var við norðan vonskuveðri og talsverðri úrkomu með lægð sem kemur að landinu á miðvikudag í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar í morgun.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur sem rekur veðurvefinn Bliku, segir að fylgjast þurfi vel með lægðinni. Útlit sé fyrir að hún dýpki meira en áður var gert ráð skrifar hann í færslu á Facebook og vísar í nýjustu spár Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar frá því í morgun.
Gangi nýjustu spár eftir gæti loftþrýstingur skammt undan Hornafirði fallið niður í 936 hektópaskal síðdegis á miðvikudag.
„Svo djúpar lægðir eru fáséðar hér við land og í október er aðeins einu sinn vitað til þess að loftvog hafi fallið niður fyrir 940 hPa í mælingu,“ skrifar Einar og vísar til mælingar á Stórhöfða í Vestmannaeyjum upp á 938 hPa.
Fyrri spár gerðu ráð fyrir að lægðin ryddi annarri minni á undan sér. Nú virðist hún ætla að gleypa þá minni og fíleflast.
„Grannt þarf að fylgjast með þessari þróun næstu tvo til þrjá sólarhringa. Mjög djúpar lægðir eins og sú sem nú er í pípunum valda langoftast óskunda hér og stundum verulegum vandræðum og með eignatjóni. En það er enn langur vegur frá Atlanta til Akureyrar!“ segir Einar.