Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, varar við stórri lægð sem nú er á sveimi í Atlantshafi. Hún geti hæglega valdið óskunda hér á landi.„Lægð sem fylgjast þarf með,“ segir Einar í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann fjallar um lægð sem berst frá austanverðum Bandaríkjunum í sveig norðaustur um Atlantshafið. Lægðin stefni á Ísland.Segir hann að breyting frá spám gærdagsins sé sú að dýpkunin er meiri en áður var gert ráð fyrir. Síðdegis á miðvikudag má þannig gera ráð fyrir tölunni 936 hPa skammt undan Hornafirði.
Einar varar við stórri lægð sem gæti valdið eignatjóni – „Svo djúpar lægðir eru fáséðar hér við land“