Smíðaði pípu­orgel frá grunni og endur­gerði ís­lenska upp­finningu - Vísir

Smíðaði pípu­orgel frá grunni og endur­gerði ís­lenska upp­finningu - Vísir

Smíðaði pípu­orgel frá grunni og endur­gerði ís­lenska upp­finningu - Vísir

Halldór Eldjárn er altmuligtmand, allt í senn tónlistarmaður, myndlistarmaður og forritari. Hann hefur verið í hljómsveitinni Sykri síðan 2008 en fengist við eigin tónsmíðar síðustu ár auk myndlistarsköpunar og tölvugrúsks, sem er oftar en ekki hluti af listsköpuninni.

„Ég hef alltaf verið að grúska og alltaf verið að semja. Árið 2019 gaf ég út mína fyrstu sólóplötu, Poco Apollo, sem byrjaði sem svona veftónverk. Ég bjó til forrit sem bjó til tónlist út frá myndum af tunglferðunum og svo útsetti ég nokkrar af þeim myndum fyrir hljómsveit og tók upp sem plötu,“ segir Halldór um sínar fyrstu sóló tónsmíðar.

Sykur skipa Kristján Eldjárn, Agnes Björt Andradóttir, Stefán Finnbogason og Halldór Eldjárn.SAGA SIG

Hvernig er munurinn á að vera í hljómsveit og því að semja eigin tónsmíðar?

„Það er náttúrulega eitthvað sem fylgir manni, eitthvað sem maður ræður ekki við, eitthvað sánd. Þeir sem þekkja mig vita að þetta kemur ekki á óvart komandi frá mér,“ segir hann um sína eigin tónlist.

„Sykur hefur aldrei verið hugsuð sem popphljómsveit og í seinni tíð hef ég verið að enduruppgötva hvað Sykur er og reynt að átta mig á því hvar við vinnum og hvar við pössum best inn. Við erum í raun kollektív, hópur listamanna sem finnst skemmtilegast að gera tilraunir og svo eru poppuð element í því,“ bætir hann við.

„Mitt stöff er tilraunakennt en ég legg mikið upp úr því að tónlistin mín sé aðgengileg, það er minn persónulegi smekkur sem ræður því.“

Flakkar milli vinnustofanna tveggja

Halldór er óhefðbundinn tónlistarmaður að því leyti að tónlistin tengist svo náið tæknidútli og leik að tækninni, sem hafa verið hugðarefni Halldórs lengi.

„Ég hef alltaf verið mikill tölvunörd í mér alla tíð. Svo opnaðist heill heimur fyrir mér þegar ég uppgötvaði Arduino og forritanlegar smátölvur sem er hægt að láta stýra straum á mótora og búa til einhverja hreyfingu, það sem í daglegu tali er kallað róbota-tækni,“ segir Halldór. 

„Í grunninn hefur alltaf verið tónlistartaug í mér og allt sem ég legg fyrir mig kemur heim í tónlistina á einhverjum tímapunkti. Mér finnst líka gaman að nálgast á mekanískan hátt jafn mannlegan og lífrænan hlut og tónlist er.“

Halldór Eldjárn Halldór Eldjárn tónlistarmaðurVísir/Anton Brink

Er þetta alltaf algjörlega samtvinnað? Byrjarðu að semja og tengir svo við tæknina eða öfugt. Er þetta kannski allt í belg og biðu?

„Þetta er dálítið samtal. Ég er með tvær vinnustofur, önnur er hreint og beint hljóðver með hljóðfærum og öllu til að búa til tónlist. Hin vinnustofan er með öllu rafmagns- og smíðadótinu mínu og ég hoppa dálítið á milli,“ segir Halldór.

„Ég fæ kannski hugmynd að einhverju hljóði og veit hvernig ég myndi gera það með mótor og streng. Þá fer ég á vinnustofuna og reyni að smíða það og svo hleyp ég með það yfir í stúdíóið og tek það upp. Svo kemur kannski eitthvað allt annað út úr því og það hljómar allt öðruvísi en það átti að hljóma.“

„Langt á undan sinni samtíð og féll svo í hálfgerða gleymsku“

Halldór heldur tónleikasýningu sína á miðvikudaginn en þar blandast tónleikar við sýningu á hljóðfærum með spjalli þar á milli. Halldór mun sýna frá átta nótna pípuorgeli sem hann smíðaði sjálfur frá grunni og kliðhörpu, íslensku hljóðfæri sem uppfinningamaðurinn Magnús K. Guðnason smíðaði í kringum 1930.

Magnús K. Guðnason fæddist 1893 og lést árið 1974.Ísmús

„Þessi maður var bátasmiður, gerðist síðar uppfinningamaður og fann upp allan andskotann. Hann bjó til eina fyrstu framleiðslulínuna fyrir harðfiskgerð, svo var hann með tillögu að botnvörpu og fann upp nuddtæki. Alls konar klikkaðar hugmyndir,“ segir Halldór um Magnús.

„En hann vildi ekkert kredit og ekkert sviðsljós og helst ekki græða neinn pening á þessu. Hann lærði á fiðlu, var músíkalskur og fór af einhverjum ástæðum að smíða gítara. Hann ákvað að rafmagn og tónlist ættu saman og tókst að búa til hljóðfæri sem hann kallaði kliðhörpu.“

Halldór lýsir kliðhörpunni sem litlu píanói með nótnaborði og strengjum nema í staðinn fyrir hamar er hljóðfærið með plokkara tengdan við mótor. 

„Þegar þú ýtir á nóturnar þá plokka þessir mótorar í strengina og það kemur hálfgert mandólínhljóð. Mér fannst alveg ruglað að einhver á þessum tíma, milli stríða, væri að vinna í því hér að búa til rafhljóðfæri,“ segir Halldór.

Kliðharpa Magnúsar sem endaði á haugunum.

Á þessum tíma voru rafmögnuð hljóðfæri skammt á veg komin en á þriðja áratugnum komu fram frumgerðir að rafhljóðfærum á borð við þeremín, trautonium og Ondes Martenot og svo færðist meira alvara í slíkar pælingar á fjórða áratugnum.

„Þeremínið hafði verið fundið upp þarna en ég veit ekki hvort það var komið til Íslands. Ég veit ekki hvað þessi Magnús hefur lesið eða vitað mikið en ég held að þetta hafi verið algjörlega hans frumlega hugmynd. Hann sá að það þurfti hreyfingu til að víbra streng og var vanur að vinna með mótora,“ segir Halldór.

„Rafmagn var frekar nýleg uppfinning á þessum tíma, en hann var kannski bara álitinn skrítinn fyrir að vera að pæla í þessu og halda að þetta gæti allt saman gengið. En síðan er þetta bara veruleikinn sem við búum við í dag. Hann var í raun bara langt, langt á undan sinni samtíð og féll svo í hálfgerða gleymsku.“

„Hann fórnaði sér fyrir þetta“

Kliðharpan er varðveitt í einhverri mynd á Byggðasafni Vestfjarða og svo bjó Magnús einnig til hljóðfærið strokhörpu sem var eins nema með boga sem strauk strengina. Hljóðupptökur úr báðum hljóðfærum er að finna inni á gagnasafninu Ísmús. 

„Fyrir nokkrum árum var ég fenginn til þess að sýningarstýra sýningu um íslensk hljóðfæri og ég fór í smá rannsóknarvinnu og óskaði eftir upplýsingum um hvaða hljóðfæri hefðu verið smíðuð og fundin upp á Íslandi,“ segir Halldór um það hvernig Magnús rak á fjöru hans.

Strokharpa Magnúsar sem hefur ekki varðveist til dagsins í dag.

Einn þeirra sem aðstoðuðu Halldór í rannsóknarvinnunni var Bjarki Sveinbjörnsson á Tónlistarsafni Íslands sem bjó yfir upplýsingum um Magnús og minjum úr safni hans.

„Það varð mjög spennandi móment. Hann bauð mér í heimsókn á Tónlistarsafnið og dró fram tvo kassa með teikningum og ljósmyndum, sem hafði tekist að bjarga, af þessum hljóðfærum,“ segir Halldór.

Kassarnir geymdu efni frá því um 1950 þegar haldin var sýning á Þjóðminjasafninu með hinu og þessu úr safni Magnúsar.

„Svo er eins og hann hafi bara horfið enda var hann ekkert að trana sér fram. Hann vildi greinilega ekki mikla athygli og keyrði sig fyrst og fremst áfram á uppfinningagleðinni og fékk hugmyndir sem hann varð að koma í framkvæmd. Ég tengi við þá hlið á manninum þó ég viti ekkert mikið meira um hann,“ segir Halldór.

„Hann átti velgjörðarmenn sem sáu einhverja möguleika í þessu hjá honum og voru að reyna að sækja um styrki fyrir hann til þess að fá einkaleyfi fyrir einhverjum af hugmyndunum. Snerist allt dálítið um það að ná einkaleyfinu en svo hefur það greinilega allt runnið í sandinn,“ segir Halldór en Magnús lést svo árið 1974.

Halldór spilar á kliðhörpuna.Vísir/Anton Brink

Þessi horfni heimur hefur setið í Halldóri síðan þá. Fólk eigi það til að einfalda fortíðina og líta á fólk í gamla daga sem vitlaust þegar raunin er að fólk hafi verið að pæla í alls konar hlutum og hugsa út fyrir kassann. Sem betur fer hafi tilraunir Magnúsar varðveist.

„Hann fórnaði sér fyrir þetta. Í þessi tíu ár sem hann vann að þessari kliðhörpu þá bara lá við að hann myndi svelta af því að hann átti ekki mikinn pening og lifði fátæklega en var alltaf með hugsjónina í gangi, alltaf að smíða og alltaf að pæla. Dálítið magnaður maður.“

Á síðasta ári ákvað Halldór að reyna að smíða sína eigin útgáfu af kliðhörpunni og hefur unnið markvisst að því á síðustu mánuðum. Hans útgáfa er þó gjörólík uppfinningu Magnúsar og á það eitt sameiginlegt að það eru mótorar sem plokka strengi hljóðfærisins.

Halldór spilar á kliðhörpuna með hljómborði.Vísir/Anton Brink

„Mín útfærsla er allt öðruvísi. Ég hef aðgang að mun smærri og þróaðri tækjum en hann og svo er ég með tækni sem hefur hjálpað mér gríðarlega,“ segir Halldór og nefnir til dæmis þrívíddarprentarann.

Halldór hefur unnið baki brotnu að því að setja saman hljóðfærið, sem er samsett úr 24 strengjum og um tvö- til þrjúhundruð smáhlutum, síðustu vikurnar fyrir tónleikana.

„Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá en þetta er að smella saman núna á lokametrunum og verður spennandi að sjá hvort þetta spili þegar tónleikarnir verða,“ segir Halldór. Eitthvað hljóð muni heyrast.

Vanir orgelsmiðir myndu hlæja

Kliðharpan er annað af tveimur hljóðfærum sem Halldór hefur verið að smíða frá grunni fyrir tónleikana, hitt er pípuorgel úr lífrænu plastefni.

„Ég fór þá leið að þrívíddarprenta pípurnar. Ég hefði getað smíðað þær úr tré en ákvað að stytta mér leið og fannst það skemmtileg áskorun. Ef maður fylgir reglunum um stærðir og vegalengdir þá fær maður hljóð út úr pípunni þó að manni finnist það ótrúlegt,“ segir Halldór.

Frumsmíðað átta nótu pípuorgel og tveir gítarar.Vísir/Anton

Hann hefur rekið sig á ýmsar hindranir við smíðina á síðustu vikum.

„Ég hef þurft að lagfæra mína hönnun dálítið. Ef maður ætlar að stytta sér leið þá kemur það oft í bakið á manni,“ segir hann.

„Vanir orgelsmiðir myndu örugglega horfa á þetta ferli og hlæja að mér. En málið var að ég, í minni rannsóknarvinnu, varð að prófa þetta á eigin skinni: Hvað er það sem skiptir máli og hvar getur maður stytt sér leið?“ 

„Þetta er búið að vera ótrúlega gaman en líka mjög krefjandi og ótrúlega erfitt þegar eitthvað virkar ekki í marga daga í röð og manni líður eins og maður sé eitthvað vitlaust. En svo að lokum, ef maður reynir nógu mikið, þá smellur þetta og nú er ég með orgel sem syngur. Það er bara átta nótur, sem er allt í lagi fyrir mína músík,“ segir Halldór.

Leitar maður í orgelsmíðabókum eða á netinu? Hvar byrjar maður?

„Það er mikið til af þessu á netinu. Svo hef ég fengið aðeins að krukka í pípuorgelinu í Hallgrímskirkju en ég samdi verk fyrir það árið 2019 sem var flutt á tónlistarhátíð,“ segir Halldór.

Pípurnar í orgeli Hallgrímskirkju eru aðeins fleiri en í orgeli Halldórs, eða rúmlega 5.700 talsins. 

„Ég fékk að sitja þarna í Hallgrímskirkju á nóttunni í tvær vikur að leika mér með þetta risastóra orgel, alveg aleinn í myrkrinu sem var ógeðslega gaman. Þar kviknaði líka áhugi og skilningur á því hvernig þetta virkar,“ segir Halldór.

Flækist þetta tæknidútl aldrei fyrir tónsköpuninni?

„Þetta gerir það alveg, það eru sumar græjur sem ég á í stúdíóinu sem ég má ekki koma nálægt ef ég ætla að klára eitthvað. Ég á svona „modular synthesizer“ sem er í kassa sem ég kalla Pandóruboxið af því ef  ég opna það þá sogast allur tími í heiminum inn í það og ég klára ekki neitt,“ segir Halldór.

Kliðharpan er komin í gang.Vísir/Anton Brink

Hann sé slagverksleikari með burtfarapróf úr FÍH og grunn í djassi og rytmískri tónlist þannig að hann leggi mikið upp úr lifandi tónlistarflutningi.

„Þetta er einhver leið til að taka þessa raftónlist, sem ég hef verið að hrærast í, út úr tölvunni og inn í efnisheiminn. Hreyfa við strengjum og plokka í trommur með mótorum. Með því að gera það kemur þetta organíska element alveg óvart.“

Frásagnarlistin notuð til að ramma tónlistina inn

Tónleikasýningin á miðvikudaginn verður einhvers konar blanda af tónlist og frásögn þar sem Halldór mun spila á ýmis hljóðfæri og spjalla inn á milli við áhorfendur um það sem honum dettur í hug, segja söguna af tilkomu hljóðfæranna og vekja upp spurningar.

„Tónlist er á skrítnum stað almennt með tilkomu gervigreindar sem getur apað eftir skapaðri tónlist og kallað sig nýja tónlist. Fólk er einhvern veginn að átta sig á því hvernig og hvort það eigi að vinna með þessa tækni. Tónleikahald hefur þá fengið nýtt vægi en samt finnst fólki ekkert endilega alltaf mjög mikilvægt að mæta á tónleika nema þeir sem eru miklir tónlistaraðdáendur,“ segir Halldór.

Halldór Eldjárn er ýmist að grúska í tölvum eða tónlistinni.Vísir/Anton Brink

„Margir tónlistarmenn í poppinu eru farnir að halda eitthvað sem er meira en tónleikar, einhvers konar sýningar, þar sem tónlistin er jafnvel komin í aukahlutverk og þetta snýst meira um að búa til flottar aðstæður og fá fullt af fólki til að mæta. Ég er ekki að reyna að gera það en ég er að reyna að taka tilraunamennskuna og setja í öðruvísi samhengi,“ segir hann.

„Þetta er ekki bara óundirbúið gigg í Mengi þó að það geti líka verið mjög hressandi og skemmtilegt. Það er búið að hugsa þetta og verið að nota ljósin og hljóðin í leikhúsinu og frásagnarlistina til þess að ramma tónlistina inn.“

Hægt er að næla sér í miða á Tix á tónleikasýningu Halldórs sem fer fram í Tjarnarbíói á miðvikudaginn 14. október næstkomandi. Fyrir utan tónleikasýninguna er ýmislegt á dagskrá hjá Halldóri, hann er að gefa út plötu með söngkonunni Rakel á næstunni, spilar á Áramótaskopi Ara bróður síns og verður svo í vinnustofudvöl í Hönnunarsafni Íslands frá desember fram í febrúar.

#endurgerði #frá #grunni #pípuorgel #smíðaði


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262942904d/smidadi-pipu-orgel-fra-grunni-og-endur-gerdi-is-lenska-upp-finningu

📰 Aðrar fréttir

Ný árás á flugvöllinn í Riyadh – fólk særðist og eldur kom upp
📅 12.10.2026 👁️ 1
Ný árás á flugvöllinn í Riyadh – fólk særðist og eldur kom upp
Ný árás á flugvöllinn í Riyadh – fólk særðist og eldur kom upp Fréttin12. október 2026ErlentLeave a Comment King Khalid-alþjóðaflugvöllurinn í Riyadh ...
Bandaríkin hóta að stöðva vopn og leyniupplýsingar til Úkraínu
📅 12.10.2026 👁️ 1
Bandaríkin hóta að stöðva vopn og leyniupplýsingar til Úkraínu
Bandaríkin hóta að stöðva vopn og leyniupplýsingar til Úkraínu Fréttin12. október 2026ErlentLeave a Comment Bandarísk stjórnvöld hafa hótað að stöðva ...
Maður handtekinn vegna meintrar árásaráætlunar gegn leiðtogum Póllands
📅 12.10.2026 👁️ 1
Maður handtekinn vegna meintrar árásaráætlunar gegn leiðtogum Póllands
Maður handtekinn vegna meintrar árásaráætlunar gegn leiðtogum Póllands Fréttin12. október 2026ErlentLeave a Comment Donald Tusk. Pólsk lögregla hefur ...
Kelly Clarkson og verslun í Brooklyn leiða saman hesta sína: „Þú ert ekki bara dónalegur, þú ert líka lygari“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Kelly Clarkson og verslun í Brooklyn leiða saman hesta sína: „Þú ert ekki bara dónalegur, þú ert líka lygari“
Söngkonan og spjallþáttastjórnandinn Kelly Clarkson tekur alls ekki vel í afsökunarbeiðni verslunarinnar í New York, eftir að Clarkson gagnrýndi versl...
Íran segir svar Bandaríkjanna ófullnægjandi – Hormuz sund áfram lokað
📅 12.10.2026 👁️ 1
Íran segir svar Bandaríkjanna ófullnægjandi – Hormuz sund áfram lokað
Íran segir svar Bandaríkjanna ófullnægjandi – Hormuz sund áfram lokað Fréttin12. október 2026ErlentLeave a Comment Íran segir svar Bandaríkjanna við t...
Á­minnti starfs­mann spítalans fyrir að fletta upp sjúkra­skrá konu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Á­minnti starfs­mann spítalans fyrir að fletta upp sjúkra­skrá konu - Vísir
Starfsmaðurinn, sem er kona, fletti sjúkraskrá konunnar upp níu sinnum á rúmlega tveggja og hálfs árs tímabili frá 2021 til 2024. Hún gat ekki sýnt fr...
Ásta Lóa og Björn í hár saman eftir sundlaugarferð
📅 12.10.2026 👁️ 2
Ásta Lóa og Björn í hár saman eftir sundlaugarferð
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir Björn Þorláksson fjölmiðlamann og þáttastjórnanda á Samstöðinni...
Einar varar við stórri lægð sem gæti valdið eignatjóni – „Svo djúpar lægðir eru fáséðar hér við land“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Einar varar við stórri lægð sem gæti valdið eignatjóni – „Svo djúpar lægðir eru fáséðar hér við land“
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, varar við stórri lægð sem nú er á sveimi í Atlantshafi. Hún geti hæglega valdið óskunda hér á landi.„L...
Útlit fyrir vonskuveður á miðvikudag
📅 12.10.2026 👁️ 2
Útlit fyrir vonskuveður á miðvikudag
Vonskuveðurs er að vænta á miðvikudag og verða líklega gefnar út gular og jafnvel appelsínugular viðvaranir þegar líður á daginn. Eins og spáin er nún...
Grænland og Bandaríkin þurfa að byggja upp „traust“ á ný
📅 12.10.2026 👁️ 1
Grænland og Bandaríkin þurfa að byggja upp „traust“ á ný
Grænland og Bandaríkin þurfa að byggja upp „traust“ á ný Mute Egede seg­ir kröf­ur Don­alds Trump um yf­ir­ráð yf­ir Græn­landi hafa skað­að sam­skipt...
Fjórtán ára piltur handtekinn eftir að tveir starfsmenn í skóla voru skotnir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Fjórtán ára piltur handtekinn eftir að tveir starfsmenn í skóla voru skotnir
Franska lögreglan handtók í morgun 14 ára pilt eftir að skotið var á skólastjóra og kennara í unglingaskóla með veiðiriffli.Skólinn er í bænum Aubagne...
Spjallið með Frosta Logasyni | Reynir Grétarsson – Frá milljarðaviðskiptum til gagnslausra hugsana
📅 12.10.2026 👁️ 1
Spjallið með Frosta Logasyni | Reynir Grétarsson – Frá milljarðaviðskiptum til gagnslausra hugsana
Spjallið með Frosta LogasyniReynir Grétarsson er einn af athyglisverðari frumkvöðlum og fjárfestum Íslands. Hann var aðeins 24 ára þegar hann stofnaði...
Saudi minister vows 'serious response' to Houthi attacks on airports
📅 12.10.2026 👁️ 2
Saudi minister vows 'serious response' to Houthi attacks on airports
It comes after the armed group hit Riyadh's international airport and another facility, killing 13 people, in a significant escalation.
Ís­land Banda­ríkjanna komið í kennslu­bækur - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Ís­land Banda­ríkjanna komið í kennslu­bækur - Vísir
Fæstir hafa gefið mikið fyrir þessa nýstárlegu landafræði. Vísir heyrði í nemanda í ítölsku sem rak í rogastans þegar hann gluggaði í nýja kennslubók ...
Hlaut fyrstu verð­laun fyrir rann­sókn í sjúkra­þjálfun - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Hlaut fyrstu verð­laun fyrir rann­sókn í sjúkra­þjálfun - Vísir
Verðlaunin voru veitt í borginni Tartu í Eistlandi á laugardag á rannsóknarþingi sem fram fór í Háskólanum í Tartu fyrir hagnýt heilbrigðisvísindi. Ve...
Sólveig Anna: „Nú er það traust algjörlega horfið“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Sólveig Anna: „Nú er það traust algjörlega horfið“
Sólveig Anna: „Nú er það traust algjörlega horfið“ Formað­ur Efl­ing­ar seg­ir traust á milli Efl­ing­ar og fram­kvæmda­stjóra Sam­taka At­vinnu­líf­i...
Zelensky: „Úkraína svarar ef Rússar virða ekki orkuvopnahlé“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Zelensky: „Úkraína svarar ef Rússar virða ekki orkuvopnahlé“
Úkraínumenn svara Rússum ef þeir fallast ekki á orkuvopnahléið sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti um í gær.Zelensky sagði þetta í ræðu á...
Women's football: Billion-dollar boom is leaving players behind - Fifpro raises concerns
📅 12.10.2026 👁️ 1
Women's football: Billion-dollar boom is leaving players behind - Fifpro raises concerns
Women's football is on course to become a billion-dollar industry, but many professional players are still earning low wages, working on insecure cont...
Vikan á Instagram: „Ekki segja nei við mig
📅 12.10.2026 👁️ 2
Vikan á Instagram: „Ekki segja nei við mig
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Verð­launaðir fyrir að tengja rekstrar- og þjóð­hag­fræði - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Verð­launaðir fyrir að tengja rekstrar- og þjóð­hag­fræði - Vísir
Robert E. Hall frá Stanford-háskóla og Michael Woodford frá Columbia-háskóla hljóta hagfræðiverðlaunin sem eru til minningar um Alfreð Nóbel í morgun....
Verð­launaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki sam­tímans - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Verð­launaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki sam­tímans - Vísir
Robert E. Hall frá Stanford-háskóla og Michael Woodford frá Columbia-háskóla hljóta hagfræðiverðlaunin sem eru til minningar um Alfreð Nóbel í morgun....
Móðir Anítu í opinskáu viðtali – „Ég hafði stanslausar áhyggjur af henni“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Móðir Anítu í opinskáu viðtali – „Ég hafði stanslausar áhyggjur af henni“
Klara Soffía Birgisdóttir, móðir Anítu sem nú er vistuð í fangelsinu á Hólmsheiði, gagnrýnir harðlega þá aðstoð sem dóttir hennar hefur fengið innan g...
Hall og Woodford fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hall og Woodford fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði
Hall og Woodford fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði Robert E. Hall og Michael Wood­ford hafa rann­sak­að hvernig ákvarð­an­ir ein­stak­linga og fyr­ir­tæk...
Dýpsta októberlægð í rúm sex­tíu ár í upp­siglingu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Dýpsta októberlægð í rúm sex­tíu ár í upp­siglingu - Vísir
Varað var við norðan vonskuveðri og talsverðri úrkomu með lægð sem kemur að landinu á miðvikudag í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar í m...
Watch: CCTV shows people take cover after missile strikes hits Riyadh airport
📅 12.10.2026 👁️ 2
Watch: CCTV shows people take cover after missile strikes hits Riyadh airport
Footage from inside the airport shows the moment the strike hit on Saturday.
Segir Bjarna hafa valið klæki og ó­frið við Eflingu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Segir Bjarna hafa valið klæki og ó­frið við Eflingu - Vísir
„Samtök atvinnulífsins ákváðu að friðþægja VR og fylgdarlið formanns félagsins, forystu fagfélaganna; í stað þess að halda trúnað við breiðfylkinguna ...
Skaut konu sína, börn og barna­börn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Skaut konu sína, börn og barna­börn - Vísir
Hann var 45 ára gamall og var skyldur sjö af átta fórnarlömbum sínum. Áttunda fórnarlambið var vinkona óléttu konunnar sem mun hafa verið í heimsókn. ...
„Eitt mest spennandi verkefni sem ég hef fengið í hendurnar“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Eitt mest spennandi verkefni sem ég hef fengið í hendurnar“
„Þetta verkefni er eitt mest spennandi verkefni sem ég hef fengið í hendurnar. Þessi bók er ótrúleg og ég man eftir að hafa lesið þessa bók sem ung st...
Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi
📅 12.10.2026 👁️ 2
Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi
Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi Einar Sveinbjörnsson Veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson segir á Facebook-sí...
Guðrún Ólöf missti fótinn vegna krabbameins: „Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann, ekki hunsa það“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Guðrún Ólöf missti fótinn vegna krabbameins: „Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann, ekki hunsa það“
Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir greindist með æxli í hnénu, en síðar komu í ljós meinvörp um allan fót og þurfti að fjarlægja hann fyrir ofan hné. Hún hvetu...
Landsliðsmarkmaður orðinn húsgagnaframleiðandi á Akureyri
📅 12.10.2026 👁️ 2
Landsliðsmarkmaður orðinn húsgagnaframleiðandi á Akureyri
„Þegar ég var atvinnumaður í handbolta í Danmörku hafði ég óþarflega mikinn frítíma. Við bjuggum í húsi með stórum garði og garðurinn var tómur. Ég fó...
Bein út­sending: Ár­leg friðarráð­stefna Höfða friðar­seturs - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Bein út­sending: Ár­leg friðarráð­stefna Höfða friðar­seturs - Vísir
Í tilkynningu segir að í tilefni þess að í ár séu 40 ár liðin frá hinum sögulega leiðtogafundi í Höfða verði litið til fortíðar og rætt hvaða lærdóm m...
Sólveig Anna sendir Bjarna Ben tóninn: „Þessu fylgja afleiðingar“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sólveig Anna sendir Bjarna Ben tóninn: „Þessu fylgja afleiðingar“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hafi þurrkað út það traust sem hafi orð...
Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni
📅 12.10.2026 👁️ 2
Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni
Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands seg­ist hafa feng­ið skýra stað­fest­ingu á ...
Sólveig Anna segir traustið algjörlega horfið eftir komu Bjarna
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sólveig Anna segir traustið algjörlega horfið eftir komu Bjarna
Traustið milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er algjörlega horfið, segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Hún rekur það til starfa Bja...
Sólveig Anna segir Bjarna hafa eytt traustinu – „Þessu fylgja afleiðingar“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sólveig Anna segir Bjarna hafa eytt traustinu – „Þessu fylgja afleiðingar“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, hafa eytt traustinu sem byggðist upp m...
Sektaður fyrir að geyma lík for­eldranna í frysti í ára­tugi - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sektaður fyrir að geyma lík for­eldranna í frysti í ára­tugi - Vísir
Líkin geymdu bræðurnir í frystikistum í skúr í Turku í suðvestanverðu Finnlandi. Foreldrarnir létust af náttúrulegum orsökum um miðjan tíunda áratugin...
Sinn Féin ministers facing no-confidence vote after Drumcree dispute
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sinn Féin ministers facing no-confidence vote after Drumcree dispute
The motion against Michelle O'Neill and three other Sinn Féin ministers will be debated after receiving the backing of unionist parties last week.
Nýjar tilkynningar og vísbendingar vegna skemmda á bílum
📅 12.10.2026 👁️ 2
Nýjar tilkynningar og vísbendingar vegna skemmda á bílum
Lögreglu hafa borist nýjar tilkynningar í morgun um að bílar hafi verið rispaðir. Þessu greindi Guðmundur Pétur Guðmundsson lögreglufulltrúi frá í Mor...
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
📅 12.10.2026 👁️ 3
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
Ein þekktasta bók hryllingssagnameistarans Stephen King er frumraun hans, Carrie. Það var þó heljarinnar bras að skrifa bókina og koma henni út. Tabit...
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
📅 12.10.2026 👁️ 3
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
Lance Bass var meðlimur einnar þekktustu og vinsælustu strákahljómsveitar allra tíma, NSYNC, en það er ekki þar með sagt að hann hafi þénað vel. Í þæt...
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
📅 12.10.2026 👁️ 3
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
The 51-year-old actor and comedian denies charges of rape and sexual assault against six women.
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
📅 12.10.2026 👁️ 3
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
Tveir ungir drengir réðust að dreng á svipuðum aldri í Hafnarfirði og neyddu hann til að fara af hlaupahjóli sínu. Þeir tóku hjólið síðan ófrjálsri he...
Brian May, Andrea Bocelli and Sarah Brightman headline Starmus Festival in Tenerife this week
📅 12.10.2026 👁️ 1
Brian May, Andrea Bocelli and Sarah Brightman headline Starmus Festival in Tenerife this week
Tenerife is preparing to welcome some of the biggest names in international music and science this week as the world-famous Starmus Festival returns t...
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka 
lækna - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna - Vísir
Í Facebook-færslu sinni segir hún að í ræðu sinni fyrir kjörið hafi hún lagt sérstaka áherslu á mennskuna, bæði í sambandi læknis og sjúklinga/fólks s...
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
📅 12.10.2026 👁️ 3
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
Alríkisdómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði í gær að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórn hans yrðu að hætta birtingum á auglýsingum með...
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruverndarsamtökum sem stóðu fyrir mótmælum gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði í gær. Fjöldi fólks kom saman til að...
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
Í dag er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægi...
Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu
📅 12.10.2026 👁️ 2
Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu
Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu HamrafellEitt krúttlegasta gestahús landsins er á lóðinni Glæsilegt 228,1 fermetra einbýlishús...
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
📅 12.10.2026 👁️ 3
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
Maður sem áður var ákærður fyrir að stinga tvo unga drengi í Providence í Bandaríkjunum var í júlí talinn ólíklegur til að stofna öðrum í hættu og fék...