„Þetta verkefni er eitt mest spennandi verkefni sem ég hef fengið í hendurnar. Þessi bók er ótrúleg og ég man eftir að hafa lesið þessa bók sem ung stelpa; hún hafði rosalega mikil áhrif á mig,“ segir Hildur um gerð tónlistarinnar við nýja kvikmynd eftir sögu Sylviu Plath, Glerhjálmurinn (The Bell Jar).
Hildur ræddi stuttlega við fréttamann RÚV á laugardagsmorgun í Ghent, þar sem hún var heiðursgestur á kvikmyndahátíðinni sem kennd er við þessa borg; Hildur hefur reyndar áður verið á þessari hátíð og unnið til verðlauna, en í þetta skiptið var hún og tónlist hennar í öndvegi.
„Verkefnið er komið af stað,“ segir Hildur aðspurð um The Bell Jar kvikmyndina og gerð tónlistarinnar.
„Þau eru búin að skjóta og við erum að fara að byrja í eftirvinnslu í lok október. Ég er búin að semja mikið af tónlist sem þau tóku og spiluðu þegar þau voru að taka upp myndina, og nú förum við bara að vinna úr þessu.“
Viðtalið úr Morgunvaktinni á Rás 1 má heyra í heild sinni í spilaranum.