Segir Bjarna hafa valið klæki og ó­frið við Eflingu - Vísir

Segir Bjarna hafa valið klæki og ó­frið við Eflingu - Vísir

Segir Bjarna hafa valið klæki og ó­frið við Eflingu - Vísir

„Samtök atvinnulífsins ákváðu að friðþægja VR og fylgdarlið formanns félagsins, forystu fagfélaganna; í stað þess að halda trúnað við breiðfylkinguna (Efling, SGS, Samiðn og Byggiðn) var þeim sem sýnt höfðu fullkomið ábyrgðarleysi og þverbrotið allt sem hægt er að kalla lágmarksreglur í samskiptum aðila vinnumarkaðarins umbunað með þátttöku framkvæmdastjóra SA í gjörningnum. Það er augljós staðreynd sem engin heiðarleg manneskja getur neitað,“ segir Sólveig Anna í færslu sem hún skrifaði á Facebook fyrr í dag.

Þar segir hún að þó svo að atvinnurekendur og verkafólk hafi ólíka hagsmuni hafi verið ákveðnar leikreglur í gildi og það hafi verið hægt að treysta því að orð standi, að það sem lagt er á borðið sé það sem í raun er í boði, og að mótaðilinn komi þegar allt kemur til alls fram af heiðarleika. Hún segir Sigríði Margréti hafa skilið þetta og þó svo að þær hafi tekist á af hörku hafi alltaf verið hægt að treysta henni. Það sama gildi ekki um Bjarna.

„Nú er það traust algjörlega horfið. Bjarni Benediktsson hefur ekki verið lengi í starfi framkvæmdastjóra SA, en sá tími hefur dugað til að stroka það út svo ekkert er eftir. Í stað þess að koma fram af virðingu við Eflingu og forystu félagsins og sýna heiðarleika í samskiptum hefur hann boðið upp á framgöngu beint úr klækja-stjórnmálunum, í stað raunverulegra samningaviðræðna með þeim grunnreglum sem þar þurfa að vera í gildi,“ segir Sólveig Anna.

Hún segir að í aðdraganda þess að hægt var að segja upp samningum vegna forsendubrests í síðustu viku hafi stjórn og trúnaðarráð Eflingar tekið upplýsta ákvörðun um að viðhalda ábyrgð og stöðugleika. Þeim hafi verið launaður sá trúnaður með svikum og skúffusamkomulagi sem sé geymt í skúffu ríkissáttasemjara.

„Samtök atvinnulífsins hafa valið ófrið við Eflingu frekar en að halda áfram tilraun Sigríðar Margrétar til heiðarlegra samskipta við langstærsta félag verkafólks á landinu, það félag sem ætlast er til að geri mótandi kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Þessu fylgja afleiðingar. Næstu kjarasamningar eru ekki langt undan – þá mun koma með skýrum hætti í ljós hvernig SA ætlar að takast að tryggja frið á vinnumarkaði með algjöru rofi í sambandi og trausti við Eflingu. Ég spái því að það muni ekki ganga vel,“ segir hún að lokum í færslu sinni.

Ekki með Höllu á heilanum

Sólveig Anna Jónsdóttir var til viðtals á Bítinu í morgun um þessi skúffusamkomulög og samband hennar við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, en Halla sagði á Sprengisandi í gær að Sólveig Anna væri með „hana á heilanum“.

Sólveig Anna vísar því frá og segist frekar vera með „á heilanum“ stöðu verka- og láglaunafólks og stöðu félagsmanna Eflingar sem sé langstærsta stéttarfélag verkafólks landsins.

Sólveig Anna segir skipta máli hvernig er farið fram, hvað er sagt og hvernig það er gert, hvort ábyrgð sé sýnd eða ábyrgðarleysi og hvort „orð skuli standa eða uppsetningar á leikritum“ séu mikilvægari.

Sólveig Anna segir að henni þyki ótrúlegt að formaður VR og félagar hennar í fagfélögunum hafi í síðustu viku verið tilbúin til að undirrita samning við SA á síðustu stundu „fyrir ekkert“ eftir allt sem sagt og gert hafði verið. Hún segist komin á það, eftir að hafa hugsað vandlega um málið, að það hafi verið gert „skúffusamkomulag“. Það sé ekki óþekkt en að slík samkomulög séu aldrei gerð við samtök stétta- og láglaunafólks.

Sólveig Anna segir svona samkomulag geta falið ýmislegt í sér og eftir að hafa verið átta ár í þessum bransa og tekið þátt í mörgum kjaralotum viti hún til þess að slík samkomulög séu gerð og segir iðnaðarmenn til dæmis þekkja það vel.

Hún segist segja þetta því henni þyki atburðarásin síðasta fimmtudag í aðdraganda þess að fagfélögin og VR undirrituðu um framlengingu kjarasamnings eftir að hafa hótað ófriði á vinnumarkaði undarleg. Þau hafi ekið um bæinn með útprentaðar uppsagnir í skottinu, fundað stuttlega með forsætisráðherra og svo farið á fund SA og náð að semja.

„Á síðustu mínútu er eitthvað undirritað til að forða fólki frá því að framkvæma hótanirnar sem var að segja upp samningum. Þess vegna er ég að segja þetta,“ segir Sólveig Anna. Skúffusamkomulög séu gerð og geymd hjá ríkissáttasemjara.

„Mér finnst þetta bara svo ótrúleg atburðarás,“ segir hún en að það megi vel vera að staðreyndin sé sú að formaður VR og félagar hennar í forystu fagfélaganna hafi verið að bíða eftir því að þau yrðu „skorin niður úr snörunni sem þau hafi verið búin sjálf að hengja sig upp í“ og að Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi viljað leiðsinna þeim í því verkefni.

„Það er auðvitað líka einstaklega líklegt,“ segir Sólveig Anna og að ekkert annað en þetta tvennt komi til greina.

Ekki bara einhverjar stelpur að rífast

Sólveig Anna segir það ekkert leyndarmál að það sé ósætti á milli formanns VR og Eflingar og þeir sem hafi komið sér inn í málið skilji það. Það sé auðvelt að gefa sér að um sé að ræða „eitthvað geðslag og atferlisvandamál“ hjá henni eða eitthvað „dæmigert stelpur rífast“.

„En það er auðvitað ekki þannig, heldur er það vegna þess að framkoma formanns VR, bæði þegar hún var framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins og þegar vinkona hennar og félagi Drífa Snædal réð þar ríkjum, var auðvitað með miklum ólíkindum,“ segir Sólveig Anna og að það hafi verið gerðar á þessum tíma margar tilraunir, og margar árangursríkar, til að jaðarsetja Eflingu og hagsmuni þeirra.

„Eftir að hún sagði sig frá þeim störfum fór hún um í fjölmiðlum og teiknaði upp mynd af mér og félögum mínum sem helstu vandamálum íslenskrar verkalýðshreyfingar. Þrátt fyrir að það sé óumdeilt og alls staðar hægt að sjá að Efling hefur náð mjög miklum árangri í kjarasamningsviðræðum og kjarasamningum síðustu ára fyrir hönd félagsfólks.“

Sólveig Anna segir staðreyndina þá að kaupmáttaraukning hjá verka- og láglaunafólki hafi verið raunveruleg undir hennar forystu og félaga hennar. Þá sé það líka staðreynd að hún hafi galopnað félagið og innleitt lýðræðisleg vinnubrögð. Það sé allt uppi á borðum hjá þeim og það viti allir sem eigi í samskiptum við þau að það sem þau segja, það gildir.

Halla hafi grafið undan hreyfingunni

Í síðasta lagi, hvað varðar afstöðu hennar í garð Höllu, segir Sólveig Anna að það að Halla hafi tekið við félaginu og farið fram með gagnrýnisverðum hætti, að hennar mati.

„Ég tel að framferði hennar hafi auðvitað grafið undan orðspori þessarar hreyfingar,“ segir hún og gagnrýnir, til dæmis, að Halla hafi hækkað laun sín um mörg hundruð þúsund krónur á viðkvæmum tíma.

Á sama tíma séu skilaboð ASÍ og verkalýðshreyfingar almennt að það eigi ekki að hækka laun umfram það sem samið er um í kjarasamningum. Forsætisráðherra hafi til dæmis sett lög til að takmarka launahækkanir dómara og alþingismanna en Halla hafi á sama tíma hækkað laun sín.

„Það er auðvitað erfitt fyrir fólk sem er vant því að fara sínu fram að verða fyrir heiðarlegri gagnrýni, að þurfa að þola að gjörðir þeirra séu ræddar með opinskáum hætti,“ segir Sólveig Anna og að hún telji að það sé dálítið vandamálið hér. Innan verkalýðshreyfingarinnar hafi það áður verið þannig að það sé ekki rætt opinberlega sem gerist innan hennar en hún aðhyllist ekki slík vinnubrögð.

Eigi að viðhalda stöðugleika

„Ég get ekki fúnkerað sem effektívur formaður í félagi verka- og láglaunafólks nema það sé allt uppi á borðunum,“ segir hún og að þær leikreglur sem séu í gildi séu til staðar.

Það sé sett ábyrgð á hennar félagsfólk að viðhalda stöðugleika og eigi þau að taka þátt í slíku samkomulagi verði það að gilda sem sé sett á borðið og komið fram við þau af heiðarleika.

„Að trúnaður ríki um það sem er sagt og svo framvegis.“

Skoða klofning af alvöru

Hvað varðar þing ASÍ og hvort Efling kljúfi sig frá því segir hún það flókið mál. Þingið hefjist eftir tvo daga. Þar hafi Halla lagt til að varaforsetum verði fækkað úr þremur í einn. Sólveig Anna segir þetta „augljóslega“ í þeim tilgangi að Halla verði eini varaforseti sambandsins og aðför að henni og félögum hennar í Eflingu. Sólveig Anna segir verða forvitnilegt að fylgjast með þessu.

Hvað varðar klofning úr ASÍ segir hún að hennar mati hafi hún ávallt verið á því að Eflingu sé betur borgið innan þess og segir hafa verið gott samstarf við núverandi forseta, Finnbjörn A. Hermannsson, en hún geti samt sem áður ekki annað en skoðað þetta og velt því fram af fullri alvöru hvað verka- og láglaunafólk græði á því að vera í ASÍ.

Þau hafi til dæmis aðkomu að Bjargi húsnæðisfélagi og ef þau myndu stíga þetta skref þyrfti að semja um þetta til dæmis og um að Efling fengi sjálfstæða aðkomu að þjóðhagsráði. Hún sagði þetta því ekki gerast á miðvikudag og ef slíkur áfangi ætti að eiga sér stað þyrfti mikinn undirbúning.

Spurð hvort hún sjái tækifæri til að ná sáttum segir Sólveig Anna það ekki í hennar verkahring og að allt frá Eflingu sé uppi á borði. Hún telur það ekki þeirra að finna lausnina.

„Það að Alþýðusambandið sé klofið þýðir einfaldlega að stéttahagsmunirnir sjást núna með ótrúlega skýrum hætti.“ 

Það séu stéttaátök í samfélaginu og það sé halli á verka- og láglaunafólk og þess vegna þurfi þau að standa sig vel í sinni baráttu og ekki vera með bull.

„En þessi barátta hefur oft og tíðum verið hvað hörðust innan vébanda Alþýðusambandsins, þar sem tekist er á um það hvort setja eigi hagsmuni verka- og láglaunafólks, sem er til dæmis eini hópurinn sem er að glíma við mikið atvinnuleysi, ofar öðrum hagsmunum eða hvort á að ýta verka- og láglaunafólki til hliðar, segja því að draga vagninn en þurfa að sætta sig við alls konar klæki og pretti til að tryggja að millistéttarhóparnir og þau sem enn ofar eru í stigveldinu fái að halda sínu forskoti á okkur.“

Opin fyrir því að ná sáttum

Sólveig Anna segir að til að laga þetta verði að vera vilji til staðar hjá forystunni en hún sjái ekki að sú mynd eigi eftir að dragast upp núna. Hún segist opin fyrir því að ná sáttum og þau hafi reynt að leggja sitt af mörkum en hafi ekki fengið mikið til baka.“

Sólveig Anna segir að fyrir framhaldið muni skipta máli hver verði kjörinn forseti ASÍ. Hún segir hvorugan þann sem er í framboði hafa sett sig inn í mál verka- og láglaunafólks og hún viti því ekki hvernig þau muni greiða atkvæði. Hún segir ólíklegt að það komi fram þriðja framboðið en það sé hægt að bíða með það fram á síðustu stundu.

#bjarna #hafa #klæki #segir #valið


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262947125d/segir-bjarna-hafa-valid-klaeki-og-ofrid-vid-eflingu

📰 Aðrar fréttir

Vikan á Instagram: „Ekki segja nei við mig
📅 12.10.2026 👁️ 2
Vikan á Instagram: „Ekki segja nei við mig
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Verð­launaðir fyrir að tengja rekstrar- og þjóð­hag­fræði - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Verð­launaðir fyrir að tengja rekstrar- og þjóð­hag­fræði - Vísir
Robert E. Hall frá Stanford-háskóla og Michael Woodford frá Columbia-háskóla hljóta hagfræðiverðlaunin sem eru til minningar um Alfreð Nóbel í morgun....
Móðir Anítu í opinskáu viðtali – „Ég hafði stanslausar áhyggjur af henni“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Móðir Anítu í opinskáu viðtali – „Ég hafði stanslausar áhyggjur af henni“
Klara Soffía Birgisdóttir, móðir Anítu sem nú er vistuð í fangelsinu á Hólmsheiði, gagnrýnir harðlega þá aðstoð sem dóttir hennar hefur fengið innan g...
Hall og Woodford fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði
📅 12.10.2026 👁️ 1
Hall og Woodford fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði
Hall og Woodford fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði Robert E. Hall og Michael Wood­ford hafa rann­sak­að hvernig ákvarð­an­ir ein­stak­linga og fyr­ir­tæk...
Dýpsta októberlægð í rúm sex­tíu ár í upp­siglingu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Dýpsta októberlægð í rúm sex­tíu ár í upp­siglingu - Vísir
Varað var við norðan vonskuveðri og talsverðri úrkomu með lægð sem kemur að landinu á miðvikudag í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar í m...
Watch: CCTV shows people take cover after missile strikes hits Riyadh airport
📅 12.10.2026 👁️ 1
Watch: CCTV shows people take cover after missile strikes hits Riyadh airport
Footage from inside the airport shows the moment the strike hit on Saturday.
Skaut konu sína, börn og barna­börn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Skaut konu sína, börn og barna­börn - Vísir
Hann var 45 ára gamall og var skyldur sjö af átta fórnarlömbum sínum. Áttunda fórnarlambið var vinkona óléttu konunnar sem mun hafa verið í heimsókn. ...
„Eitt mest spennandi verkefni sem ég hef fengið í hendurnar“
📅 12.10.2026 👁️ 1
„Eitt mest spennandi verkefni sem ég hef fengið í hendurnar“
„Þetta verkefni er eitt mest spennandi verkefni sem ég hef fengið í hendurnar. Þessi bók er ótrúleg og ég man eftir að hafa lesið þessa bók sem ung st...
Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi
📅 12.10.2026 👁️ 1
Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi
Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi Einar Sveinbjörnsson Veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson segir á Facebook-sí...
Guðrún Ólöf missti fótinn vegna krabbameins: „Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann, ekki hunsa það“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Guðrún Ólöf missti fótinn vegna krabbameins: „Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann, ekki hunsa það“
Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir greindist með æxli í hnénu, en síðar komu í ljós meinvörp um allan fót og þurfti að fjarlægja hann fyrir ofan hné. Hún hvetu...
Landsliðsmarkmaður orðinn húsgagnaframleiðandi á Akureyri
📅 12.10.2026 👁️ 2
Landsliðsmarkmaður orðinn húsgagnaframleiðandi á Akureyri
„Þegar ég var atvinnumaður í handbolta í Danmörku hafði ég óþarflega mikinn frítíma. Við bjuggum í húsi með stórum garði og garðurinn var tómur. Ég fó...
Bein út­sending: Ár­leg friðarráð­stefna Höfða friðar­seturs - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Bein út­sending: Ár­leg friðarráð­stefna Höfða friðar­seturs - Vísir
Í tilkynningu segir að í tilefni þess að í ár séu 40 ár liðin frá hinum sögulega leiðtogafundi í Höfða verði litið til fortíðar og rætt hvaða lærdóm m...
Sólveig Anna sendir Bjarna Ben tóninn: „Þessu fylgja afleiðingar“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sólveig Anna sendir Bjarna Ben tóninn: „Þessu fylgja afleiðingar“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hafi þurrkað út það traust sem hafi orð...
Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni
📅 12.10.2026 👁️ 2
Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni
Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands seg­ist hafa feng­ið skýra stað­fest­ingu á ...
Sólveig Anna segir traustið algjörlega horfið eftir komu Bjarna
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sólveig Anna segir traustið algjörlega horfið eftir komu Bjarna
Traustið milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er algjörlega horfið, segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Hún rekur það til starfa Bja...
Sólveig Anna segir Bjarna hafa eytt traustinu – „Þessu fylgja afleiðingar“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sólveig Anna segir Bjarna hafa eytt traustinu – „Þessu fylgja afleiðingar“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, hafa eytt traustinu sem byggðist upp m...
Sektaður fyrir að geyma lík for­eldranna í frysti í ára­tugi - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sektaður fyrir að geyma lík for­eldranna í frysti í ára­tugi - Vísir
Líkin geymdu bræðurnir í frystikistum í skúr í Turku í suðvestanverðu Finnlandi. Foreldrarnir létust af náttúrulegum orsökum um miðjan tíunda áratugin...
Sinn Féin ministers facing no-confidence vote after Drumcree dispute
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sinn Féin ministers facing no-confidence vote after Drumcree dispute
The motion against Michelle O'Neill and three other Sinn Féin ministers will be debated after receiving the backing of unionist parties last week.
Nýjar tilkynningar og vísbendingar vegna skemmda á bílum
📅 12.10.2026 👁️ 2
Nýjar tilkynningar og vísbendingar vegna skemmda á bílum
Lögreglu hafa borist nýjar tilkynningar í morgun um að bílar hafi verið rispaðir. Þessu greindi Guðmundur Pétur Guðmundsson lögreglufulltrúi frá í Mor...
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
📅 12.10.2026 👁️ 3
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
Ein þekktasta bók hryllingssagnameistarans Stephen King er frumraun hans, Carrie. Það var þó heljarinnar bras að skrifa bókina og koma henni út. Tabit...
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
📅 12.10.2026 👁️ 3
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
Lance Bass var meðlimur einnar þekktustu og vinsælustu strákahljómsveitar allra tíma, NSYNC, en það er ekki þar með sagt að hann hafi þénað vel. Í þæt...
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
📅 12.10.2026 👁️ 3
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
The 51-year-old actor and comedian denies charges of rape and sexual assault against six women.
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
📅 12.10.2026 👁️ 3
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
Tveir ungir drengir réðust að dreng á svipuðum aldri í Hafnarfirði og neyddu hann til að fara af hlaupahjóli sínu. Þeir tóku hjólið síðan ófrjálsri he...
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka 
lækna - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna - Vísir
Í Facebook-færslu sinni segir hún að í ræðu sinni fyrir kjörið hafi hún lagt sérstaka áherslu á mennskuna, bæði í sambandi læknis og sjúklinga/fólks s...
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
📅 12.10.2026 👁️ 3
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
Alríkisdómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði í gær að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórn hans yrðu að hætta birtingum á auglýsingum með...
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruverndarsamtökum sem stóðu fyrir mótmælum gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði í gær. Fjöldi fólks kom saman til að...
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
Í dag er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægi...
Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu
📅 12.10.2026 👁️ 1
Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu
Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu HamrafellEitt krúttlegasta gestahús landsins er á lóðinni Glæsilegt 228,1 fermetra einbýlishús...
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
📅 12.10.2026 👁️ 3
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
Maður sem áður var ákærður fyrir að stinga tvo unga drengi í Providence í Bandaríkjunum var í júlí talinn ólíklegur til að stofna öðrum í hættu og fék...
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
📅 12.10.2026 👁️ 3
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
Residents and holidaymakers across the Canary Islands face changes to supermarket, shopping centre and public service opening hours today, Monday 12th...
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
📅 12.10.2026 👁️ 5
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
Stjarnan úr Mean Girls, Daniel Franzese, hefur opnað sig um hvernig honum tókst að léttast um 65 kg.„Ekkert áfengi, enginn sykur, æfingar fjórum sinnu...
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Ástin blómstrar Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni ...
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 5
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
📅 12.10.2026 👁️ 4
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
„Við höfum heyrt bara í gegnum lyfjastofnanasamstarf, og í lyfjafræðiheiminum, að það er rosa algengt að þegar fólk er að taka inn svartamarkaðslyf, þ...
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
📅 12.10.2026 👁️ 4
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ Kostn­að­ur vegna við­gerða og við­halds á tveim­ur grunn­skól­um í Reykja­nes­bæ er kom­inn í tíu mi...
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flu...
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
📅 12.10.2026 👁️ 5
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
The Canary Islands Government has officially lifted the rain pre-alert affecting Tenerife, Gran Canaria, Lanzarote, Fuerteventura and La Graciosa, fol...
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
📅 12.10.2026 👁️ 5
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað rannsókn á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í heimildamyndinni NAZA.Heimildarmyn...
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
Í dagbók lögreglu segir að fjórir hafi verið hýstir í fangaklefa í morgun. Þar er einnig sagt frá því að eldur hafi kviknað í mannlausum bíl fyrir uta...
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
📅 12.10.2026 👁️ 4
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
A nationwide general strike has been called in Spain, including the Canary Islands for Wednesday 11th November, with the country's housing crisis at t...
Vilja árleg þjóðarsamtöl
📅 12.10.2026 👁️ 4
Vilja árleg þjóðarsamtöl
Niðurstöður Samtalsins voru kynntar í Hörpu í gær. Samtalið fór fram á laugardag, þegar fólk settist niður í rúmlega 20 skólum víða um land og reyndi ...
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
📅 12.10.2026 👁️ 3
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
Addressing the Commons, Burnham is expected to say that a new deal with the EU could help tackle illegal immigration and boost economic growth.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
📅 12.10.2026 👁️ 4
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, BBC finds.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
📅 12.10.2026 👁️ 5
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, investigation finds.
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
📅 12.10.2026 👁️ 4
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skem...
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
📅 12.10.2026 👁️ 4
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árá...
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
📅 12.10.2026 👁️ 4
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti grein...
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
📅 12.10.2026 👁️ 4
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða...
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
📅 11.10.2026 👁️ 4
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
The critically endangered apes were rescued from intense wildfires that destroyed their habitat in August and September.