Hann var 45 ára gamall og var skyldur sjö af átta fórnarlömbum sínum. Áttunda fórnarlambið var vinkona óléttu konunnar sem mun hafa verið í heimsókn. Ólétta konan var komin átta mánuði á leið.
Ódæðið átti sér stað í Erie í Pennsylvaníu á föstudagskvöldið. Þá er maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, sagður hafa gengið inn í hús þar sem fólkið var samankomið og byrjað að skjóta fjölskyldumeðlimi sína.
AP-fréttaveitan hefur eftir lögreglunni að upptökur af vettvangi sýni manninn ganga inn í húsið og skothríð heyrist þar inni. Í kjölfarið komi tvær konur öskrandi og byrji að berja á dyrnar. Þá gekk maðurinn út úr húsinu, skaut þær til bana og fór aftur inn þar sem hann beindi byssu sinni að sjálfum sér.
Þegar lögregluþjóna bar að garði komu þeir að líkum kvennanna fyrir utan. Á neðstu hæð hússins fundu þeir lík fimm ára drengs og eins árs stúlku. Lík tveggja kvenna til viðbótar og tveggja ungra manna fundust í stiga hússins og lík mannsins á efri hæðinni.
Í samtali við fjölmiðla sagði Rick Lorah, lögreglustjóri Erie, að hann vildi ekki ræða tilefni ódæðisins að svo stöddu en gaf til kynna að geðheilsa mannsins hefði spilað eitthvað inn í. Hann sagði rannsóknina meðal annars snúast um að ræða við aðra ættingja og skoða snjalltæki kvennanna sem skotnar voru fyrir utan húsið.
„Þær vissu að eitthvað gekk á í þessu húsi. Við verðum að komast að því hvað það var.“
„Hvernig getur þú gert þetta?“
Blaðamaður AP ræddi við tvær konur sem sögðust vinkonur einnar kvennanna sem dóu í húsinu. Þær sögðust hafa þekkt fjölskylduna í um þrjátíu ár og að árásarmaðurinn hefði verið hinn ljúfasti, áður fyrr. Hann hefði lent í vandræðum undanfarið.
Ein konan sagðist ekki skilja hvernig nokkur maður gæti gert sinni eigin fjölskyldu þetta.
„Þetta hefði aldrei átt að koma fyrir hana, börnin eða nokkurn. Hans eigin barnabörn, börnin hans. Hvernig getur þú gert þetta?“