Vonskuveðurs er að vænta á miðvikudag og verða líklega gefnar út gular og jafnvel appelsínugular viðvaranir þegar líður á daginn. Eins og spáin er núna verður slæmt veður um allt land og versta veðrið á norðvestanverðu landinu.
Vont eða ekkert ferðaveður verður á landinu.
„Það er að vænta óveðurs í sem allra stystu máli. Það er væntanleg úr suðri mjög djúp og mjög kröpp lægð,“ segir Teitur Arason veðurfræðingur.
Miðja lægðarinnar fer líklega yfir austanvert landið.
„Fyrri partinn á miðvikudeginum er útlit fyrir austan hvassviðri eða storm með talsverðri eða mikilli rigningu á láglendi og það gæti orðið hríð til fjalla.“
Eftir því sem miðja lægðarinnar færist yfir austurhluta landsins snýst í norðanátt á Vestfjörðum og Norðvesturlandi. Þá bætist við kalt vatn úr norðri og rigningin verður að snjókomu. Þá fer snælínan langleiðina niður að sjávarmáli á norðvestanverðu landinu á miðvikudagskvöldið.
Síðar kemur einnig hríðarveður á norðaustanverðu landinu.
„Í grófum dráttum er vont eða ekkert ferðaveður á landinu á miðvikudaginn en það er aðeins misjafnt eftir landshlutum og tímabilum á deginum.“
Óveðrið er bundið við miðvikudag.
„Það er ágætis veður í dag og á morgun og svo róast þetta mikið strax á fimmtudaginn og verður skaplegasta veður eftir hádegi á fimmtudaginn.“
Lægðin er óvenjudjúp og spár gera ráð fyrir að loftvog verði 936 millíbör yfir Austurlandi.
„Það er náttúrulega sjaldgæft að þrýstingur yfir landinu sé það lágur en það sem bjargar því að þetta verður kannski ekki versta veður í manna minnum er að það er ekki hæð neins staðar í nágrenni við landið. Þessi hæð er ein með sviðið. Versti vindurinn sem er í kringum þessa lægð verður sennilega á hafinu milli Íslands og Færeyja. Þar verður allra mesta veðurhæðin.“