Starfsmaðurinn, sem er kona, fletti sjúkraskrá konunnar upp níu sinnum á rúmlega tveggja og hálfs árs tímabili frá 2021 til 2024. Hún gat ekki sýnt fram á að hún hefði átt lögmætt erindi í sjúkraskrá konunnar. Í kvörtun kom fram að starfsmaðurinn hefði aldrei komið að meðferð konunnar.
Eftirlitsnefnd um rafræna sjúkraskrá á Landspítala taldi starfsmanninn hafa brotið lög um sjúkraskrár og um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna. Tilkynnti nefndin framferði starfsmannsins til embættis landlæknis og Persónuverndar, að því er kemur fram í úrskurði Persónuverndar í málinu.
Starfsmaðurinn svaraði ekki boði Persónuverndar um að hann tjáði sig við meðferð kvörtunarinnar og skilaði ekki upplýsingum sem stofnunin óskaði eftir.
Persónuvernd féllst á sjónarmið Landspítalans um að starfsmaðurinn bæri sjálfur ábyrgð á uppflettingunum vegna þess að hann hefði farið út fyrir aðgangsheimildir sínar í starfi.
Niðurstaða Persónuverndar var að uppflettingar starfsmannsins í sjúkraskránum samrýmdust ekki persónuverndarlögum. Starfsmaðurinn var áminntur en stofnunin taldi ekki ástæðu til þess að beita hann stjórnvaldssektum..