Úkraínumenn svara Rússum ef þeir fallast ekki á orkuvopnahléið sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti um í gær.
Zelensky sagði þetta í ræðu á öryggisráðstefnu í Varsjá, sem hann ávarpaði í gegnum fjarfundarbúnað. Hann sagðist einnig bíða frekar niðurstaðna úr viðræðum milli Rússa og Bandaríkjamanna og hvaða skref Bandaríkjamenn væru tilbúnir að stíga í átt að lausn stríðsins.
Rússar virðast ekki líta svo á að þetta vopnahlé sé í gildi því þeir héldu árásum á orkumannvirki áfram í gærkvöld og nótt, meðal annars í Kyiv og Kharkiv. Zelensky segir árásirnar hafa hafist strax eftir tilkynningu Trumps um vopnahléið.
„Það er greinilegt að Pútín les ekki Truth Social,“ sagði Zelensky og vísaði þar í samfélagsmiðil Trumps sem hann nýtir til að senda frá sér yfirlýsingar. Myndskeiðið hér að neðan er frá árás Rússa á íbúðarhverfi í Kharkiv-héraði.
Viðbrögðin við tilkynningu Trumps í gær benda ekki til þess að þetta orkuvopnahlé byggi á sérstaklega traustum grunni. Í fyrstu kannaðist Zelensky ekki við samkomulagið en skömmu síðar lýsti hann yfir stuðningi við það og vonaði að Rússar gerðu slíkt hið sama. Rússar vilja ekkert tjá sig um vopnahléið.
Emmanuel Macron forseti Frakklands sagði í morgun að hann hefði ekki tekið eftir neinu orkuvopnahléi af hálfu Rússa. Eina leiðin til að eitthvað gerðist í stríðinu væri vilji til vopnahlés af beggja hálfu.
Fréttaskýrandi BBC í Kyiv segir að útlit sé fyrir að Trump hafi lýst of snemma yfir vopnahléinu og hafi jafnvel haldið að hann hafi getað þvingað það fram með yfirlýsingu sinni.
Mestu viðskiptaþvinganir frá upphafi stríðs
Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins ræða stöðuna í Úkraínu á fundi sem hófst í morgun. Kaja Kallas utanríkismálastjóri Evrópusambandsins tilkynnti að Evrópusambandið hefði formlega bætt hátt í 1.600 manns á lista yfir viðskiptaþvinganir til að þrýsta enn frekar á Rússa. Yfir helmingur þeirra tengist framleiðslu á eldflaugum.
„Þeim sem sæta efnahagsþvingunum hefur ekki fjölgað meira á einu bretti síðan Rússar hófu stríðið,“ sagði hún í yfirlýsingu. Alls eru um 3.500 manns á þessum lista, þar á meðal Vladimír Pútín.