Robert E. Hall frá Stanford-háskóla og Michael Woodford frá Columbia-háskóla hljóta hagfræðiverðlaunin sem eru til minningar um Alfreð Nóbel í morgun. Ólíkt sjálfum Nóbelsverðlaununum sem sænska vísindaakademían útdeilir er það sænski seðlabankinn sem velur verðlaunahafanna í hagfræði.
Nýjungin sem þeir Hall og Woodford eru sagðir hafa bryddað upp á var að byggja hagfræðilíkön sín ekki aðeins á tölfræðilegri fylni á milli þjóðhagslegra þátta eins og verðbólgu, framleiðni og neyslu heldur á áhrifum heimila og fyrirtækja á hagkerfið.
„Frá því að nýju líkönin komu til sögunnar hafa þau reynst afar gagnleg í að glíma við efnahagslegar niðursveiflur sem við höfum lent í,“ segir í rökstuðningi sænska seðlabankans.
Gömlu hagstjórnartækin sem byggðust á kenningum John Maynard Keynes, enska hagfræðingsins, gengu út á að menn lækkuðu stýrivexti og ykju ríkisútgjöld í kreppum en það gagnstæða þegar hagkerfið ofhitnaði.
Þær aðferðir hafi hins vegar litlum árangri skilað í olíukreppunum á áttunda ártug síðustu aldar. Í stað þess að draga úr atvinnuleysi leiddu þær til óðaverðbólgu. Árin einkenndust af viðvarandi atvinnuleysi, verðbólgu og litlum hagvexti á vesturlöndum.
„Rannsóknir verðlaunahafanna veittu okkur stöðugan fræðilegan grunn fyrir þau líkön sem seðlabankar og ríkisstjórnir um allan heim nota núna. Við erum betur í stakk búin að takast á við efnahagsáföll með þeim, þar á meðal orkukreppur eða skyndilegar breytingar í neyslu heimila,“ segir John Hassler, formaður hagfræðiverðlaunanefndarinnar.
Fréttin hefur verið uppfærð.