Fyrst var greint frá sölunni á vef Mbl en á fasteignavef Vísis er húsinu lýst sem afar fallegu og vel við höldnu. Það er rúmir 136 fermetrar með aukaíbúð og sérstæða 19 fermetra óskráða vinnustofu á lóðinni.
„Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum með afar smekklegum hætti og með virðingu fyrir aldri og anda hússins. Fallegur panill, loft- og gólflistar, rósettur í loftum og pólýhúðaðir pottjárnsofnar setja svip sinn á eignina. Lóðin er afgirt með sólríkum, hellulögðum bakgarði og fallegu, upphituðu Serralux-gróðurhúsi. Bílastæði með rafknúnu hliði er á lóð þar sem auðveldlega komast tveir bílar fyrir,“ segir í auglýsingunni.
Eftir að slitnaði upp úr hjónabandi Ingu og fjárfestsins Árna Haukssonar flutti Inga sig úr fyrrnefndu einbýli á Arnarnesinu og í húsið sjarmerandi á Barónsstíg. Inga fann svo ástina í örmum viðskiptamannsins Sigurðar Viðarssonar og má reglulega sjá þau njóta lífsins á samfélagsmiðlum.