Fyrir rúmum þremur áratugum síðan gróf Viðar Jökull Björnsson flugvallastjóri á Reykjavíkurflugvelli, þá barn að aldri, mikinn peningafjársjóð í jörðu í Heiðmörk með föður sínum Birni Olsen. Nú þegar Viðar ætlaði að finna fjársjóðinn var landslagið gjörbreytt og ómögulegt að finna hann. En fyrir ótrúlega tilviljun var annar maður, Guðmundur Bjarki Brynjólfsson, á vappi á svipuðum slóðum með málmleitartæki. Hann fann kistuna og hafði samband við Viðar.
Ævintýraleg saga úr Heiðmörk: Viðar gróf fjársjóð með föður sínum fyrir 32 árum – Svo gerðist hið ótrúlega