„Á miðvikudaginn nálgast úr suðri mjög kröpp og mjög djúp lægð og miðjan ætlar að fara yfir austurhluta landsins. Þannig það stefnir í óveður á öllu landinu,“ segir Teitur Arason, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Hann segir óveðrið tvískipt. Fyrri hluta dagsins megi búast við austanstormi með rigningu á láglendi og snjókomu til fjalla. Seinna um kvöldið sé hins vegar reiknað með snjókomu, hríðaveðri og norðanstormi á Vestfjörðum og Norðurlandi. „Austanveðrið er í hámarki fyrir hádegi en það versta í þessu verður sennilega norðanáttin með hríðinni. Það verður verst á Vestfjörðum seinni partinn.“
Einhverjar breytingar gætu þó orðið á spánni þar sem óvíst sé hvar lægðamiðjan lendir.
„Inni í lægðarmiðjunni er logn, eða svikalogn eins og við getum kallað það. Þannig að fólk getur verið viðbúið því að ef smávægileg breyting verður á ferli lægðarinnar, að það geti gjörbreytt veðrinu í viðkomandi landshluta. En heilt yfir má búast við óveðri á miðvikudaginn.“
Á höfuðborgarsvæðinu verði líklega ausandi rigning fyrripartinn, hvassviðri og slydda um kvöldið. Gular og appelsínugular viðvaranir verða gefnar út í dag og búast má við samgöngutruflunum.
„Mér finnst líklegt að flug raskist. Það er ansi hvasst í háloftunum með þessari lægð,“ segir Teitur.
Ganga frá lausamunum
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir mögulegt að lægðin verði sú dýpsta í októbermánuði hér á landi í sextíu ár. Teitur tekur undir að hún sé óvenjulega djúp. Hann biður fólk um að undirbúa sig.
„Það á að vera fínasta veður í dag og á morgun og það má taka inn lausamuni og kannski að hliðra til plönum og vera minna á ferðinni. Fólk á ekki að gera ráð fyrir því að komast ferða sinna á miðvikudaginn.“