Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur ekki notið minni vinsælda frá því hann tók við embætti árið 2017. Sjö mánuðir eru uns seinna kjörtímabili Emmanuels Macron lýkur. Fyrri umferð kosninganna verður 18. apríl og sú síðari 2. maí, fái enginn helming atkvæða.
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar netkönnunar Ipsos BVA-Cesi líta aðeins 15 prósent landsmanna forsetann jákvæðum augum. Fallið er þó ekki hátt frá síðustu könnun þegar hlutfall jákvæðra var 16 af hundraði.
Ríkisstjórn Macrons glímir við fjölda vandamála sem endurspeglast í skoðanakönnunum. Viðvarandi orkukrísa, umfangsmikil mótmæli framhaldsskólanema vegna bágs aðbúnaðar og miklar deilur í þinginu um fjárlagafrumvarp þykja lóð á vogarskálar óvinsældanna.
Vinsældir forsætisráðherrans Sébastiens Lecornu hafa þó aukist um tvö prósentustig milli kannana. Nú telja 22 af hundraði Frakka hann standa sig vel. Könnunin var gerð dagana 7. og 8. október og náði til eitt þúsund fullorðinna Frakka.
Ríflega helmingur franskra kjósenda kveðst uggandi yfir hækkandi orkuverði, um 44 prósent hafa áhyggjur af framtíð velferðarkerfisins og þrír af hverjum tíu óttast að opinberar skuldir séu að fara úr böndunum.
Leiðtogar Þjóðfylkingarinnar, þau Jordan Bardella og Marine Le Pen, njóta hylli um þriðjungs kjósenda.
Vinsældirnar hafa lækkað um þrjú til fjögur prósentustig eftir að Mediapart birti gamlar samfélagsmiðlafærslur Bardella sem sýndu gyðingaandúð og stuðning við samsæriskenningar.
Edouard Philippe, fyrrverandi forsætisráðherra, er í þriðja sæti með um 20 prósenta hylli. Hann hefur því ögn meiri stuðning en Gabriel Attal, frambjóðandi Endurreisnar, flokks Macrons forseta.