Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók í dag á móti undirskriftarlista um að stöðva leyfisveitingu til sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í firðinum og var ákvörðuninni mótmælt bæði í Reykjavík og á Seyðisfirði um helgina.
Yfir 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda. Forsvarsmenn VÁ, félags um vernd fjarðar, fóru á fund ráðherra í morgun og afhentu honum listann.
Benedikta Guðrún Svavarsdóttir formaður VÁ kynnti honum listann sem var prentaður út á eitt blað með QR-kóða í nafni umhverfisverndar. Hún vísaði í máli sínu til þess að samkvæmt skoðanakönnun sem hafi verið framkvæmd árið 2023 hafi 75% Seyðfirðinga verið andvíg áformum um sjókvíaeldi á svæðinu. Árið 2024 hafi önnur könnun sýnt að 61% landsmanna væru andvíg þeim.
Ekki annað hægt en að skoða málið á ríkisstjórnarfundi
Ráðherra þakkaði fyrir listann og sagði baráttu félagsins hafa haft áhrif á sig og sína vinnu í ráðuneytinu. Lagareldi og skipulag haf- og strandsvæða væru ekki málaflokkar innan hans ráðuneytis en hann hygðist fara með listann á ríkisstjórnarfund á morgun.
„Þar mun fara fram frekari umræða um þessi mál af því að það er ekki annað hægt þegar 13 þúsund manns skrifa undir svona kröfu.“
Í tilkynningu VÁ segir að enginn þeirra ráðherra sem fara með málaflokkinn hafi viljað mæta á mótmælin um helgina og taka við undirskriftunum á staðnum.
Mitt hlutverk að tala máli líffræðilegrar fjölbreytni
Jóhann Páll segir í samtali við fréttastofu að hann hyggist ekki einungis ræða sjókvíaeldi á Seyðisfirði heldur málaflokkinn í heild sinni á fundi ríkisstjórnarinnar.
Spurður hvort hann muni beita sér í þessu máli sem umhverfisráðherra segist hann ekki hafa lagaheimild til þess að afturkalla leyfin. Ofanflóðahætta sé aftur á móti á hans könnu og ráðuneytið hafi þegar og sett af stað ákveðna vinnu sem varðar ofanflóðahættu vegna atvinnustarfsemi, meðal annars sjókvíaeldis.
„Og almennt lít ég á það sem mitt hlutverk að tala máli líffræðilegrar fjölbreytni og náttúruverndar þegar kemur að þessari atvinnugrein, sem öðrum.“
Mikilvægt að endurskoða sjókvíaeldi í heild sinni
Fagstofnanir sem heyri undir hans ráðuneyti og atvinnuvegaráðuneytið veiti leyfin. Þetta mál hafi verið vel vaktað í ráðuneytinu. Hann telji sig hafa beitt sér eins og hann geti í þessu máli samkvæmt gildandi lögum og reglum.
Hann segir mjög mikilvægt að endurskoða sjókvíaeldi í heild sinni. Spurður hvort það sé óheppilegt að leyfi sem þessi séu veitt í litlum firði þar sem meirihluti íbúa sé mótfallinn framkvæmdinni svarar ráðherra játandi.
„Ég tel almennt óheppilegt þegar farið er af stað með, hvað þá þegar það er mengandi, starfsemi í óþökk nærsamfélags. Það hefur verið svona rauður þráður í mínum störfum einmitt að auka vald og vægi nærsamfélagsins þegar kemur að stórframkvæmdum.“