Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að stórauka þurfi fjármagn til heilbrigðiskerfisins svo hægt verði að fullmanna stöður hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á bráðalegudeildum. Samkvæmt skýrslu heilbrigðisráðuneytis eru hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar 40% færri en æskilegt er.
Staðan endurspegli óviðunandi starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga
Heilbrigðisráðherra skipaði starfshóp í mars í fyrra sem ætlað var að hefja innleiðingu verklags um mönnunarviðmið í hjúkrun á bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.
Hópnum var ætlað að kostnaðargreina viðmiðin, skilgreina mælikvarða mönnunar og hvernig skyldi bregðast við ónógri mönnun. Mælingin tók til 16 deilda – 14 á Landspítala og tveggja á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Samkvæmt niðurstöðum eru hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar 40% færri en æskilegt er.
„Það kemur því miður ekki á óvart að við séum langt undir þeim gæðaviðmiðum eða því álagi sem er mælanlegt,“ segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
„Og staðfestir í raun það sem við erum búin að vera að tala fyrir ítrekað, að það er óviðunandi starfsumhverfi og starfsaðstæður þarna úti fyrir mjög marga hjúkrunarfræðinga, sem þýðir að skjólstæðingar okkar eru ekki að fá þá þjónustu af þeim gæðum og því öryggi sem við teljum að eigi að vera.“
Skýrslan legið á borði heilbrigðisráðuneytis í hálft ár
Þá kemur fram í skýrslunni kostnaðarmat vegna innleiðingar mönnunarviðmiðanna, sem hljóðar upp á einn og hálfan milljarð króna á verðlagi ársins 2024.
Starfshópurinn skilaði skýrslunni til heilbrigðisráðuneytisins í byrjun apríl. Hún var þó ekki birt á heimasíðu ráðuneytisins fyrr en um miðja síðustu viku, eftir að fréttastofa sendi fyrirspurn og óskaði eftir henni. Niðurstöðurnar hafa því legið fyrir í rúmlega hálft ár.
Helga Rósa undrar sig á því af hverju það hafi dregist svo lengi að birta skýrsluna.
„Í ljósi fjárlaganna núna og þeirrar niðurskurðarkröfu sem liggur á heilbrigðiskerfinu þá eru þetta auðvitað ekki niðurstöður sem eru kannski þægilegar að vinna með í því ljósi. Vegna þess að það er alveg ljóst að það þarf að stórauka fjármagn inn í heilbrigðiskerfið til þess að hægt sé að manna kerfið betur af þeim gæðum og því öryggi sem við viljum að skjólstæðingar okkar fái.“
Stórvantar yfirsýn og stýringu hjúkrunarþjónustu
Helga Rósa segir lítið hafa gerst í þessum málum frá því skýrslunni var skilað inn til ráðuneytis. Hjúkrunarfræðingar hafi óskað eftir fundi með heilbrigðisráðuneytinu um hvernig verði unnið úr niðurstöðum og tillögum skýrslunnar. Ekkert samtal hafi átt sér stað og enginn fundur hefur verið boðaður.
„Það sem við viljum og þarf að gerast, er að það þurfa að vera lögbundin mönnunarviðmið sem tryggja hérna ákveðið öryggi sjúklinga og gæði þjónustunnar. Og svo stórvantar hérna yfirsýn og stýringu á því hvernig við viljum hafa þjónustuna,“ segir Helga Rósa, og heldur áfram:
„Og þetta tvennt talar inn í meginniðurstöður þessarar skýrslu. Annars vegar að mönnun sé byggð á þessum mælanlegu gæðaviðmiðum og hins vegar að hér sé sett á fót embætti yfirhjúkrunarfræðings sem hefur yfirsýn á landsvísu um það hvernig hjúkrunarþjónusta eigi að vera. Það skiptir gríðarlega miklu máli,“ segir Helga Rósa.
Í ljósi þess hversu alvarleg staðan sé skjóti það skökku við að ráðuneytið sé ekki farið að vinna úr niðurstöðum skýrslunnar.
„Ég held að þetta sé hluti af því að þetta er ákveðið vanmat á kvennastörfum og hjúkrunarfræðingar eigi bara að vera hluti af einhverju viðbragði og stökkva til þegar á þarf að halda,“ segir Helga Rósa.